
Klukkan 05:35 í morgun mældist jarðskjálfti um þrjá kílómetra vestur af Kleifarvatni. Var hann 3,7 að stærð og fannst víða á höfuðborgarsvæðinu. „Áfram mælist smáskjálftavirkni yfir kvikuganginum, norð-norðaustur af Grindavík. Um 370 jarðskjálftar mældust þar síðustu nótt. Í gær mældust rétt um 1800 skjálftar yfir kvikuganginum. Engin teljandi merki eru um breytta virkni yfir ganginum…Lesa meira








