Heitavatnið tekið af hluta Borgarness á þriðjudaginn

Vegna viðhaldsvinnu verður heitavatnslaust í neðri hluta Borgarness þriðjudaginn 21. nóvember frá klukkan 09:00 til 17:00 (sjá nánar á meðfylgjandi mynd).

„Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda,“ segir í tilkynningu frá Veitum.

Heitavatnið tekið af hluta Borgarness á þriðjudaginn - Skessuhorn