Fréttir

true

Salernisskúr lokað tímabundið í skógræktinni

Vegna ítrekaðra skemmda á klósettum í salernisskúr við Garðalund á Akranesi hefur verið ákveðið að loka honum tímabundið. Til stendur að setja upp eftirlitsmyndavélar á svæðinu og verður skúrinn opnaður aftur þegar þær verða komnar upp. Fram kemur á heimasíðu Akraneskaupstaðar að ef einhverjir hafa orðið varir við sérkennilegar mannaferðir á svæðinu kringum salernisskúrinn eða…Lesa meira

true

Blóðsykurinn mældur á Akranesi á laugardaginn

Félag sykursjúkra á Íslandi notar jafnan alþjóðadag sykursjúkra, 14. nóvember, til að vekja athygli almennings á sjúkdómnum sykursýki. Á Akranesi verður boðið upp á blóðsykursmælingu í verslanamiðstöðinni Smiðjuvöllum, við Apótek Vesturlands, laugardaginn 18. nóvember frá klukkan 13:00-16:30.  Það er Lionsklúbbur Akraness og Lionsklúbburinn Eðnur, sem líkt og mörg undanfarin ár, ber hita og þunga af…Lesa meira

true

Fjölmennt bingó í Brekkó

Það var fullt út úr dyrum í Brekkubæjarskóla í gærkvöldi þegar haldið var bingó á sal skólans. Bingóið var á vegum 10. bekkjar til styrktar útskriftarferðar bekkjarins sem verður í maí á næsta ári. Hulda Gestsdóttir var kynnir á viðburðinum og stjórnaði bingóinu með miklum ágætum og nemendur í 10. bekk lásu upp tölurnar með…Lesa meira

true

Aðstoða við verðmætabjörgun í Grindavík

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að hleypa íbúum inn á skilgreint svæði sem er austan megin við Víkurbraut í Grindavík, að Ægisgötu. Íbúar og fyrirtæki austan megin við Víkurbraut og norðan við Austurveg eru í fyrsta hópi. Þetta er skipulögð og stýrð aðgerð undir stjórn lögreglunnar. Íbúar sem fá að fara inn til…Lesa meira

true

Skallagrímur vann sigur á Snæfelli í hörkuleik

Snæfell og Skallagrímur mættust í Vesturlandsslag í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og var leikurinn í Stykkishólmi. Gestirnir úr Borgarnesi byrjuðu betur og komust í 0-7 en Snæfell kom sér hægt og rólega inn í leikinn og komst fyrst yfir þegar þrjár mínútur voru eftir af fyrsta leikhluta. Jaeden King hitti þá úr…Lesa meira

true

Kristjana og Svavar Knútur í Vinaminni

Hinir söngelsku vinir, Kristjana Stefáns og Svavar Knútur, munu fagna vetri með virktum á Akranesi fimmtudaginn 16. nóvember á Kalmanstónleikum í Vinaminni kl. 20. „Það er búið að vera mikið um að vera hjá þeim sitt í hvoru lagi og hafa þau ekki getað haldið tónleika saman í tvö ár, fyrir utan tvenna tónleika í…Lesa meira

true

Fundur um þróun íbúðamarkaðar á landsbyggðinni

Á morgun, þriðjudaginn 14. nóvember, verður haldinn opinn fundur um atvinnuuppbyggingu og þróun íbúðamarkaðar á landsbyggðinni. Fundurinn verður haldinn í Landnámssetrinu í Borgarnesi kl. 11:30 og er opinn öllum. Að fundinum standa aðilar sem láta sig varða uppbyggingu á landsbyggðinni, en það eru SSV, Byggðastofnun, HMS, Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið og Samtök iðnaðarins. Á fundinum…Lesa meira

true

Miklar skemmdir á götum og öðrum innviðum

Ljóst er að vegna gliðnunar í jarðskorpunni hafa miklar skemmdir orðið í Grindavík í jarðhræringunum frá því á föstudagskvöldið. Á meðfylgjandi myndum, sem ljósmyndarar frá Landsbjörgu og Vegagerðinni hafa tekið, má sjá sýnilegar sprungur og sig á yfirborðinu á nokkrum stöðum. Götur eru sprungnar og jarðsig er víða mikið. Auk sýnilegra skemmda hafa jarðstrendir og…Lesa meira

true

Óhöpp á fjöllum í gær

Síðdegis í gær voru björgunarsveitir kallaðar út vegna rjúpnaveiðimanns sem hafði dottið við Leggjabrjót, á leiðinni milli Þingvalla og Botnsdals. Við fallið hljóp skot úr haglabyssu í fót hans. Einnig var þyrla frá Landhelgisgæslunni kölluð út í verkefnið. Björgunarsveitir úr uppsveitum Árnessýslu héldu af stað til aðstoðar. Þyrlan sótti viðkomandi, en björgunarsveitarfólk fylgdi félaga skotmannsins…Lesa meira