
Blóðsykurinn mældur á Akranesi á laugardaginn
Félag sykursjúkra á Íslandi notar jafnan alþjóðadag sykursjúkra, 14. nóvember, til að vekja athygli almennings á sjúkdómnum sykursýki. Á Akranesi verður boðið upp á blóðsykursmælingu í verslanamiðstöðinni Smiðjuvöllum, við Apótek Vesturlands, laugardaginn 18. nóvember frá klukkan 13:00-16:30. Það er Lionsklúbbur Akraness og Lionsklúbburinn Eðnur, sem líkt og mörg undanfarin ár, ber hita og þunga af verkefninu.
Boðið verður upp á mælingar á blóðsykri ásamt fræðslu um sjúkdóminn. Sykursýki af tegund 2, áunnin sykursýki, er algengur sjúkdómur og talið er að margir einstaklingar séu með hann án þess að hafa minnstu hugmynd um það. Eftir mælingar er jafnan nokkrum einstaklingum bent á að hafa samband við lækni til að ganga úr skugga um hvort viðkomandi hafi sykursýki eður ei, en vísbendingar bent til þess.