Kristjana og Svavar Knútur í Vinaminni

Hinir söngelsku vinir, Kristjana Stefáns og Svavar Knútur, munu fagna vetri með virktum á Akranesi fimmtudaginn 16. nóvember á Kalmanstónleikum í Vinaminni kl. 20. „Það er búið að vera mikið um að vera hjá þeim sitt í hvoru lagi og hafa þau ekki getað haldið tónleika saman í tvö ár, fyrir utan tvenna tónleika í sumar. En nú mega velunnarar þessa músíkalska pars á Akranesi kætast, því Kalman Listafélagi hefur tekist að lokka þau út úr vetrarhýðinu. Hér er því um að ræða kjörið tækifæri fyrir þá sem hafa sakna þess að mæta á þessa rómuðu dúettatónleika eða jafnvel misst af þeim hingað til,“ segir í tilkynningu.

Kristjana og Svavar Knútur í Vinaminni - Skessuhorn