
Fundur um þróun íbúðamarkaðar á landsbyggðinni
Á morgun, þriðjudaginn 14. nóvember, verður haldinn opinn fundur um atvinnuuppbyggingu og þróun íbúðamarkaðar á landsbyggðinni. Fundurinn verður haldinn í Landnámssetrinu í Borgarnesi kl. 11:30 og er opinn öllum. Að fundinum standa aðilar sem láta sig varða uppbyggingu á landsbyggðinni, en það eru SSV, Byggðastofnun, HMS, Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið og Samtök iðnaðarins. Á fundinum verður fjallað um atvinnuþróun á landsbyggðinni, stöðuna á íbúðamarkaði, stafræn byggingarleyfi, nýsköpunarstyrki, hagkvæmni og skilvirkni í íbúðauppbyggingu og þau lánaúrræði sem standa til boða bæði hvað varðar rekstur og íbúðauppbyggingu.