
Aðstoða við verðmætabjörgun í Grindavík
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að hleypa íbúum inn á skilgreint svæði sem er austan megin við Víkurbraut í Grindavík, að Ægisgötu. Íbúar og fyrirtæki austan megin við Víkurbraut og norðan við Austurveg eru í fyrsta hópi. Þetta er skipulögð og stýrð aðgerð undir stjórn lögreglunnar. Íbúar sem fá að fara inn til Grindavíkur eiga að koma á söfnunarstaðinn sem er bílastæðið við gossvæðið, við Fagradalsfjall. Þar hefur nú töluvert stór hópur björgunarsveitarfólks safnast saman á bílum og tækjum sem notuð verða í aðgerðinni. Íbúar þurfa að koma um Suðurstrandarveg að austan til Grindavíkur að söfnunarstað. Þar fer fram upplýsingataka og skráning, ásamt því að fólk fær frekari leiðbeiningar. Frá söfnunarstað verður ekið í bílum viðbragðsaðila inn í bæinn.
„Heimild til þess að fara inn í bæinn er ábyrgðarhluti og ekki léttvæg ákvörðun og þýðir alls ekki að svæðið sé að öðru leyti opið fyrir umferð. Þetta verður skipulögð og stýrð aðgerð undir stjórn lögreglunnar,“ segir í tilkynningu. Meðfylgjandi myndir eru frá Landsbjörgu frá því í morgun.

