
Félag sykursjúkra á Íslandi notar jafnan alþjóðadag sykursjúkra, 14. nóvember, til að vekja athygli almennings á sjúkdómnum sykursýki. Á Akranesi verður boðið upp á blóðsykursmælingu í verslanamiðstöðinni Smiðjuvöllum, við Apótek Vesturlands, laugardaginn 18. nóvember frá klukkan 13:00-16:30. Það er Lionsklúbbur Akraness og Lionsklúbburinn Eðnur, sem líkt og mörg undanfarin ár, ber hita og þunga af…Lesa meira








