Fréttir

true

Áætlað er að 263 skemmtiferðaskip komi til Faxaflóahafna á næsta ári

Skemmtiferðaskipavertíð Faxaflóahafna á þessu ári hófst 28. mars með komu skipsins Ambience, sem lagðist að Skarfabakka og farþegar nutu þar stórbættrar aðstöðu. Vertíðinni lauk 14. október þegar Pacific World sigldi úr höfn. Í heildina komu 99 skemmtiferðaskip til Reykjavíkur og Akraness á þessu ári í alls 261 skipakomu. Heildar farþegatölur skemmtiferðaskipanna á árinu var 306.311…Lesa meira

true

Of hátt leiguverð, biðlistar og óboðlegt húsnæði meðal vandamála leigjenda

Velferðarvaktin stóð fyrir fjölmennu málþingi í gær sem bar yfirskriftina „Tjaldað til einnar nætur?“ Þar var fjallað um stöðu tekjuminni hópa á húsnæðismarkaði. „Erfiðleikar á húsnæðismarkaði og einkum aðstæður þeirra sem búa við það óöryggi sem fylgir því að eiga í húsnæðisvanda, hafa lengi verið til umræðu í samfélaginu. Markmiðið með málþinginu var að fá…Lesa meira

true

Kynnti nýjustu bókina sína

Rithöfundurinn Eva Björg Ægisdóttir frá Akranesi hélt síðdegis í gær bókakynningu í heimabæ sínum. Í Pennanum Eymundsson las hún kafla úr nýjustu bók sinni; Heim fyrir myrkur. Fjölmenni var mætt til að hlusta og kaupa bókina á sérstöku kynningarverði. Reyndar var þetta annar dagurinn í röð sem tölvukerfi Pennans Eymundsson lá niðri á landsvísu, en…Lesa meira

true

LED lýsingu ljósastaura lokið í Hvalfjarðarsveit

Í sumarlok lauk LED lýsingarvæðingu allra ljósastaura í Hvalfjarðarsveit. Framkvæmdinni er fyrst og fremst ætlað að bæta lýsingu og auka öryggi íbúa og gesta en samhliða næst jafnframt umtalsverður orkusparnaður við lýsingu ljósastaura í sveitarfélaginu. Á vef Hvalfjarðarsveitar er minnt á að nú fer í hönd sá tími þegar veturinn er hvað dimmastur og því…Lesa meira

true

Í framleiðslu á kannabis

Húsleit fór fram í liðinni viku í húsi í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi vegna gruns um að þar færi fram framleiðsla fíkniefna. Við húsleitina fannst nokkuð magn meintra kannabisefna ásamt plöntum og búnaði til ræktunar. Einn aðili á sjötugsaldri var handtekinn á staðnum og viðurkenndi hann að hafa staðið að framleiðslunni. Ein minniháttar líkamsárás var…Lesa meira

true

Krabbameinsdeildin Von var með ljósagöngu

Mánudaginn 6. nóvember hittist lítill hópur fólks við hafnarskúrinn í Grundarfirði. Tilefnið var ljósaganga frá höfninni að Grundarfjarðarkirkju þar sem kveikt var á nokkrum friðarkertum. Þetta var falleg stund þar sem aðstandendum gafst tækifæri til að minnast ástvina sem fallið höfðu frá og hugsa til þeirra sem glíma við hinn illvíga sjúkdóm. Blíðskaparveður var á…Lesa meira

true

Skammhlaup í FVA – Myndasyrpa úr íþróttahúsinu

Í dag var kennsla með stysta móti í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi en nú fer hið árlega skammhlaup fram í skólanum. Skammhlaupið hófst með pylsupartýi í mötuneytinu í hádeginu. Í ljósi þess að íþróttahúsið á Vesturgötu er lokað var ekki skrúðganga þangað frá FVA að þessu sinni. Dagskráin var í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum og hófst…Lesa meira

true

Opnun á nýju húsnæði Landmælinga á Akranesi

Seinni partinn í gær var innflutningsboð Landmælinga Íslands haldið í nýju húsnæði stofnunarinnar að Smiðjuvöllum 28 á Akranesi. Þar gátu boðsgestir skoðað hina nýju vinnuaðstöðu og þá möguleika sem í henni felast. Gunnar H. Kristinsson forstjóri Landmælinga bauð gesti velkomna og sagði að nýja húsnæðið væri talsvert ólíkt því sem þau voru í áður á…Lesa meira

true

Dalabyggð sýknuð af flestum kröfum fasteignasala

Héraðsdómur Vesturlands kvað 31. október síðastliðinn upp dóm nr. E-69/2023 í máli sem Frón fasteignamiðun ehf. höfðaði gegn sveitarfélaginu Dalabyggð. Krafðist Frón þess að sveitarfélagið yrði dæmt til að greiða tæpar sjö milljónir króna með vöxtum í sölulaun vegna nokkurra eigna sveitarfélagsins að Laugum í Sælingsdal. Í kjölfar auglýsinga um eignirnar barst kauptilboð í desember…Lesa meira

true

Skýrsla um aðgerðir gegn riðu

Sérfræðingahópur sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra skipaði 16. maí sl. hefur skilað skýrslu sem ber heitið „Aðgerðir gegn riðuveiki – ný nálgun með verndandi arfgerðum“. Hópurinn leggur m.a. til að gefin verði út sameiginleg landsáætlun stjórnvalda, Matvælastofnunar og bænda um riðuveikilaust Ísland, þ.m.t arfgerðagreiningar. Einnig að stutt verði við sæðingar með hrútum sem bera verndandi arfgerðir. Í…Lesa meira