
Bætt lýsing eykur öryggi íbúa. Hér er mynd af Krosslandi. Ljósm. Hvalfjardarsveit
LED lýsingu ljósastaura lokið í Hvalfjarðarsveit
Í sumarlok lauk LED lýsingarvæðingu allra ljósastaura í Hvalfjarðarsveit. Framkvæmdinni er fyrst og fremst ætlað að bæta lýsingu og auka öryggi íbúa og gesta en samhliða næst jafnframt umtalsverður orkusparnaður við lýsingu ljósastaura í sveitarfélaginu.