Fréttir

true

Lilja Ósk hlaut hvatningarverðlaun Dags gegn einelti

Á Degi gegn einelti sem var í gær, miðvikudaginn 8. nóvember, afhentu Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra hvatningarverðlaun Dags gegn einelti við hátíðlega athöfn í Hólabrekkuskóla í Breiðholti. Fagráð eineltismála hjá Menntamálastofnun valdi verðlaunahafa úr innsendum tilnefningum og fyrir valinu varð Lilja Ósk Magnúsdóttir, verkefnastjóri forvarna og félagsmála…Lesa meira

true

Jörð skalf norðvestur af Grindavík

Á fyrsta tímanum í nótt varð kröftug jarðskjálftahrina á Reykjanesskaga. Upptök skjálftanna voru norður og vestur af Grindavík. Stærstu skjálftarnir voru 4,7 til 5 stig en fjöldi smærri skjálfta einnig. Íbúum í Grindavík varð ekki svefnsamt í nótt; brá illa við enda nötraði þar allt og skalf og átti fólk von á því að skjálftarnir…Lesa meira

true

Skotfélag Snæfellsness með glæsilega sýningu

Skotgrund – Skotfélag Snæfellsness setti upp glæsilega byssusýningu í húsnæði gamla netaverkstæðisins í Grundarfirði í tilefni Rökkurdaga. Byssurnar og aðrir sýningarmunir voru allir í eigu félagsmanna og voru gripirnir hver öðrum glæsilegri. Þarna mátti sjá gripi sem notaðir voru í villta vestrinu, seinni heimsstyrjöldinni og að sjálfsögðu nútímaverkfæri. Sýningin var vel sótt og voru félagsmenn…Lesa meira

true

Íbúafjöldi á Vesturlandi í fyrsta sinn yfir 18 þúsund

Íbúum á Vesturlandi fjölgaði alls um 522 á tímabilinu 1. nóvember 2022 til jafnlengdar í ár. Þeir eru nú í fyrsta skipti yfir 18 þúsund og átta betur. Íbúafjölgun á Vesturlandi er 3% á þessu tólf mánaða tímabili. Hlutfallsleg langmesta fjölgun hefur orðið í Eyja- og Miklaholtshreppi. Þar hefur íbúum fjölgað um 15, eða um…Lesa meira

true

Óhöpp og stungið af

Þrjú umferðaróhöpp voru tilkynnt í liðinni viku til Lögreglunnar á Vesturlandi og voru þau öll án slysa á fólki. Speglar rákust saman er bifreiðar mættust. Ekið var á ljósastaur á Akranesi, staurinn féll og er bifreiðin skemmd. Loks var ekið utan í kyrrstæða bifreið og á brott, gerandi var stöðvaður skömmu síðar og er grunaður…Lesa meira

true

Umbreyta má fjárstofninum með hrútum ættuðum frá Þernunesi

„Aldrei hefur áður verið að finna viðlíka úrval glæsigripa um allt land. Ég veit út frá samtölum við glögga bændur og ráðunauta á þeim svæðum þar sem ég hef ekki sjálfur séð lömb, að ástandið er jafnvel enn stórkostlegra en því sem ég lýsi,“ segir Jón Viðar Jónmundsson sauðfjárræktarráðunautur m.a. í grein sem hann ritaði…Lesa meira

true

„Þakklátur fyrir hvern dag þegar maður er kominn á þennan aldur“

Rætt við Skagamanninn Hörð Geirlaugsson sem flutti aftur heim á æskuslóðirnar Hörður Geirlaugsson er fæddur og uppalinn á Akranesi, sonur hjónanna Geirlaugs Kristjáns Árnasonar og Sveinbjargar Heiðrúnar Arnmundsdóttur. Hann á fimm systkini, Inga Þóra er elst fædd 1948, Kári er fæddur 1949, Þuríður Erna árið 1954, næstyngst er Laufey Guðríður sem er fædd 1963 og…Lesa meira

true

Trommað gegn einelti á Akranesi – Myndasyrpa

Í dag er alþjóðlegur baráttudagur gegn einelti og af því tilefni komu saman allir nemendur Brekkubæjarskóla og Grundaskóla á Akranesi fyrir framan stjórnsýsluhúsið við Stillholt. Þar trommuðu þau í sjö mínútur sem er táknrænt fyrir hvern dag vikunnar sem við viljum öll hafa eineltislausan. Nemendur skólanna mynduðu saman regnbogalitaða trommusveit til þess að fagna fjölbreytileikanum…Lesa meira

true

Skammhlaup í FVA á morgun

Á morgun verður kennsla með stysta móti í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi en þá fer hið árlega skammhlaup fram í skólanum. Kennsla er þó með hefðbundnu sniði til kl. 11.30. Skammhlaupið hefst síðan með pylsupartýi í mötuneytinu. Í ljósi þess að íþróttahúsið á Vesturgötu er lokað verður ekki skrúðganga frá FVA að þessu sinni. Dagskráin…Lesa meira

true

Dagur gegn einelti er í dag

Einelti hefur því miður fylgt mannkyninu um aldaraðir og hefur áhrif á marga einstaklinga í samfélaginu og getur haft alvarlegar afleiðingar á börn og ungmenni. Verkefnisstjórn Menntamálaráðuneytisins í aðgerðum gegn einelti ákvað á sínum tíma að standa að sérstökum degi gegn einelti sem lendir á 8. nóvember ár hvert. Dagurinn var haldinn hátíðlegur í fyrsta…Lesa meira