
Íbúafjöldi á Vesturlandi í fyrsta sinn yfir 18 þúsund
Íbúum á Vesturlandi fjölgaði alls um 522 á tímabilinu 1. nóvember 2022 til jafnlengdar í ár. Þeir eru nú í fyrsta skipti yfir 18 þúsund og átta betur. Íbúafjölgun á Vesturlandi er 3% á þessu tólf mánaða tímabili. Hlutfallsleg langmesta fjölgun hefur orðið í Eyja- og Miklaholtshreppi. Þar hefur íbúum fjölgað um 15, eða um 13,4% og eru nú 127. Athygli vekur sú mikla fjölgun íbúa sem orðið hefur í Borgarbyggð. Þar fjölgaði um 258 íbúa á 12 mánuðum, fóru úr 4.068 í 4.326 sem jafngildir 6,3% fjölgun. Á Akranesi eru sem fyrr flestir búsettir á Vesturlandi, eða 8.197 manns, hafði fjölgað um 215 á tímabilinu eða um 2,7%. Einungis í Skorradalshreppi varð fækkun á tímabilinu, um einn íbúa.