
Jörð skalf norðvestur af Grindavík
Á fyrsta tímanum í nótt varð kröftug jarðskjálftahrina á Reykjanesskaga. Upptök skjálftanna voru norður og vestur af Grindavík. Stærstu skjálftarnir voru 4,7 til 5 stig en fjöldi smærri skjálfta einnig. Íbúum í Grindavík varð ekki svefnsamt í nótt; brá illa við enda nötraði þar allt og skalf og átti fólk von á því að skjálftarnir væru undanfari þess að færi að gjósa. Kraftur skjálftanna var mikill og fundust þeir m.a. vel á höfuðborgarsvæðinu og á nokkrum stöðum á Vesturlandi; á Akranesi og Borgarnesi og allt vestur í Dali, samkvæmt upplýsingum Skessuhorns.
Gestir á hóteli við Bláa lónið voru í nótt fluttir í burtu með leigubílum sökum þess að hrunið hafði úr grjóthleðslu við hótelið. Þá hafa forsvarmenn Bláa lónsins ákveðið að loka lóninu í viku tíma.