
Skammhlaup í FVA á morgun
Á morgun verður kennsla með stysta móti í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi en þá fer hið árlega skammhlaup fram í skólanum. Kennsla er þó með hefðbundnu sniði til kl. 11.30. Skammhlaupið hefst síðan með pylsupartýi í mötuneytinu. Í ljósi þess að íþróttahúsið á Vesturgötu er lokað verður ekki skrúðganga frá FVA að þessu sinni. Dagskráin verður í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum og hefst kl. 12.30 en síðan verður aftur farið niður í skóla kl. 14 og hlé gert á dagskránni kl. 15.30.
Í Skammhlaupi er liðakeppni í óhefðbundnum íþróttagreinum. Útskriftarefni eru liðsstjórar og starfsfólk skólans fær ýmis hlutverk, svo sem skipuleggjendur, stigaverðir, dómarar, tímaverðir, reddarar o.fl. Keppt er t.d. í myndlist, þrautaboðhlaupi, rafsuðu, að verpa eggjum, púsla, planka, leggja á borð og syngja.
Skammhlaupsball á vegum nemendafélags FVA, NFFA, verður haldið í sal skólans um kvöldið, frá kl. 21 til miðnættis 9. nóv. „Húsið opnar kl. 21 og lokar kl 21:30 og enginn fer inn á ballið eftir það. Ekki er heimilt að hafa með sér drykki, lyf, tóbak, nikótínvörur eða þess háttar inn á ballið, allt slíkt er gert upptækt við innganginn. Við leggjum mikla áherslu á að dansleikir á vegum skólans takist vel. Öll meðferð áfengis og annarra vímuefna er bönnuð. Á ballinu mun nemendum gefast kostur á því að blása í áfengismæli og komast í svokallaðan Edrúpott til að eiga möguleika á glæsilegum útdráttarverðlaunum frá NFFA,“ segir í tilkynningu.
FVA hvetur foreldra/forráðamenn nemenda til að ræða forvarnir við ungmennin sín og verður það einnig gert í skólanum. „Eins viljum við beina því til foreldra og forráðamanna nemenda að leyfa ekki eftirlitslaus partý hvorki fyrir né eftir ball.“
