Fréttir

true

Íbúafjöldi á Vesturlandi í fyrsta sinn yfir 18 þúsund

Íbúum á Vesturlandi fjölgaði alls um 522 á tímabilinu 1. nóvember 2022 til jafnlengdar í ár. Þeir eru nú í fyrsta skipti yfir 18 þúsund og átta betur. Íbúafjölgun á Vesturlandi er 3% á þessu tólf mánaða tímabili. Hlutfallsleg langmesta fjölgun hefur orðið í Eyja- og Miklaholtshreppi. Þar hefur íbúum fjölgað um 15, eða um…Lesa meira

true

Óhöpp og stungið af

Þrjú umferðaróhöpp voru tilkynnt í liðinni viku til Lögreglunnar á Vesturlandi og voru þau öll án slysa á fólki. Speglar rákust saman er bifreiðar mættust. Ekið var á ljósastaur á Akranesi, staurinn féll og er bifreiðin skemmd. Loks var ekið utan í kyrrstæða bifreið og á brott, gerandi var stöðvaður skömmu síðar og er grunaður…Lesa meira

true

Umbreyta má fjárstofninum með hrútum ættuðum frá Þernunesi

„Aldrei hefur áður verið að finna viðlíka úrval glæsigripa um allt land. Ég veit út frá samtölum við glögga bændur og ráðunauta á þeim svæðum þar sem ég hef ekki sjálfur séð lömb, að ástandið er jafnvel enn stórkostlegra en því sem ég lýsi,“ segir Jón Viðar Jónmundsson sauðfjárræktarráðunautur m.a. í grein sem hann ritaði…Lesa meira

true

„Þakklátur fyrir hvern dag þegar maður er kominn á þennan aldur“

Rætt við Skagamanninn Hörð Geirlaugsson sem flutti aftur heim á æskuslóðirnar Hörður Geirlaugsson er fæddur og uppalinn á Akranesi, sonur hjónanna Geirlaugs Kristjáns Árnasonar og Sveinbjargar Heiðrúnar Arnmundsdóttur. Hann á fimm systkini, Inga Þóra er elst fædd 1948, Kári er fæddur 1949, Þuríður Erna árið 1954, næstyngst er Laufey Guðríður sem er fædd 1963 og…Lesa meira

true

Trommað gegn einelti á Akranesi – Myndasyrpa

Í dag er alþjóðlegur baráttudagur gegn einelti og af því tilefni komu saman allir nemendur Brekkubæjarskóla og Grundaskóla á Akranesi fyrir framan stjórnsýsluhúsið við Stillholt. Þar trommuðu þau í sjö mínútur sem er táknrænt fyrir hvern dag vikunnar sem við viljum öll hafa eineltislausan. Nemendur skólanna mynduðu saman regnbogalitaða trommusveit til þess að fagna fjölbreytileikanum…Lesa meira

true

Skammhlaup í FVA á morgun

Á morgun verður kennsla með stysta móti í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi en þá fer hið árlega skammhlaup fram í skólanum. Kennsla er þó með hefðbundnu sniði til kl. 11.30. Skammhlaupið hefst síðan með pylsupartýi í mötuneytinu. Í ljósi þess að íþróttahúsið á Vesturgötu er lokað verður ekki skrúðganga frá FVA að þessu sinni. Dagskráin…Lesa meira

true

Dagur gegn einelti er í dag

Einelti hefur því miður fylgt mannkyninu um aldaraðir og hefur áhrif á marga einstaklinga í samfélaginu og getur haft alvarlegar afleiðingar á börn og ungmenni. Verkefnisstjórn Menntamálaráðuneytisins í aðgerðum gegn einelti ákvað á sínum tíma að standa að sérstökum degi gegn einelti sem lendir á 8. nóvember ár hvert. Dagurinn var haldinn hátíðlegur í fyrsta…Lesa meira

true

Þjálfar hugarfarið á hverjum degi í sjósundi

Rætt við listakonuna Önnu Sigríði Gunnarsdóttur í Stykkishólmi Anna Sigríður Gunnarsdóttir er fædd og uppalin í Reykjavík en flutti árið 1980 til Snæfellsness, fyrst til Laugargerðis en síðan til Stykkishólms árið 1982. Önnu er margt til lista lagt en hún starfar m.a. við leirlist og býr til listaverk sem hún kallar náttúruljóð. Hún ákvað að…Lesa meira

true

Lambhrútasýningar vestanlands haustið 2023

Ítarleg umfjöllun Jóns Viðars um hrútasýningar á sjö stöðum á Vesturlandi Inngangur Íslenskir bændur eiga sér meiri og lengri hefð í sýningahaldi á sauðfé en margar þjóðir. Um áratugi á síðustu öld voru slíkar sýningar lögbundnar, varið til þeirra fé bæði frá sveitarfélögum og ríkinu. Lögin kváðu á um framkvæmd sýninganna í smáatriðum. Stórar bækur…Lesa meira

true

Með sjöfalt fleiri um borð en leyfilegt var

Síðdegis í gær var snekkjunni Amelíu Rós vísað af varðskipi til hafnar á Akranesi. Við eftirlit Landhelgisgæslunnar um borð í snekkjunni fyrr um daginn á Faxaflóa, um átta sjómílur frá landi, kom í ljós að farþegar um borð voru nærri sjöfalt fleiri en leyfi er til við siglingu á rúmsjó, voru 80 en máttu mest…Lesa meira