Fréttir

true

Haustfagnaður sauðfjárbænda í Dölum – myndasyrpa

Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu stóð að venju fyrir Haustfagnaði um liðna helgi en það hefur um árabil tíðkast í tengslum við veturnætur eða fyrsta vetrardag. Þar var farið yfir það bitastæðasta í sauðfjárræktinni á svæðinu. Haustfagnaðurinn hófst á lambhrútasýningu norðan varnargirðingar sem sker sýsluna í tvö varnarhólf. Það voru þau Monica og Harald bændur að…Lesa meira

true

Breytingar fyrirhugaðar á uppbyggingu barnaverndarþjónustu

Á fundi fræðslunefndar Borgarbyggðar 31. október síðastliðinum var til umræðu samstarf sveitarfélagsins við Hvalfjarðarsveit á sviði barnaverndamála, en mennta- og barnamálaráðuneytið gerir nú ríkari kröfur til sveitarfélaga á sviði barnaverndarþjónustu. Ákveðið hefur verið að horfa til samstarfs við fleiri sveitarfélög til að uppfylla þær kröfur sem barnamálaráðuneytið hefur sett ásamt því að skoða bakvaktafyrirkomulag í…Lesa meira

true

Fjör á Hrekkjavöku á Akranesi – Myndasyrpa

Það voru margar skrýtnar verur á ferli seinni part dags á Akranesi í gær þegar krakkar gengu um bæinn og bönkuðu á dyr til að fá grikk eða gott. Kolbrún Ingvarsdóttir var á ferðinni um Skógarhverfið á Skaganum í gær og tók myndir af furðuverum, stórum sem smáum og flestum hryllilegum. Um kvöldið var svo…Lesa meira

true

“Það er gott að gefa fólki tækifæri til að safnast saman í þágu síns nærumhverfis“

Rætt við Arnheiði Hjörleifsdóttur umhverfisfulltrúa Hvalfjarðarsveitar Arnheiður Hjörleifsdóttir er fædd í Reykjavík, alin upp á Akranesi frá sex ára aldri en býr í dag á Bjarteyjarsandi í Hvalfirði þar sem hún rekur ferðaþjónustu ásamt því að vera með búskap. Í byrjun síðasta árs auglýsti Hvalfjarðarsveit starf umhverfisfulltrúa en starfið var þá nýtt af nálinni hjá…Lesa meira

true

Snæfell tapaði á móti Íslandsmeisturunum

Snæfell og Valur mættust í sjöundu umferð Subway deildar kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Stykkishólmi. Valskonur skoruðu fyrstu sjö stigin í leiknum áður en Mammusu Secka setti niður þrist fyrir Snæfell þegar tæpar fjórar mínútur voru liðnar af fyrsta leikhluta. Þegar tvær mínútur voru eftir leiddi Valur með tíu stigum,…Lesa meira

true

Rýmka á bæjarskrifstofunni

Akraneskaupstaður hefur tekið á leigu 320 fm rými í verslanamiðstöðinni við Dalbraut 1, þar sem útibú Íslandsbanka verður fram á næsta föstudag. Það eru Reitir – verslun ehf. sem á þennan hluta hússins. Verður húsnæðið afhent bæjarfélaginu eftir nokkrar vikur. Að sögn Haraldar Benediktssonar bæjarstjóra er megin markmiðið með samningnum að rýmka á starfsemi bæjarskrifstofunnar…Lesa meira

true

Skrifað undir samning um rekstur á nýja Baldri

Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, og Jóhanna Ósk Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Sæferða, skrifuðu á mánudaginn undir samning þess efnis að Sæferðir taki að sér rekstur nýrrar Breiðafjarðarferju sem mun sigla undir nafninu Baldur eins og fyrri ferjur. Áætlað er að nýr Baldur hefji áætlunarsiglingar um Breiðafjörð upp úr miðjum nóvember en vætutíð hefur seinkað vinnu við endurbætur…Lesa meira

true

Eyrbyggjurefill hlaut í gær styrk

Stykkishólmsdeild Noræna félagsins veitti í gær Eyrbyggjasögufélaginu styrk til refilsaumsverkefnis félagsins sem formlega verður hleypt af stokkunum næstkomandi laugardag í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi, kl. 14 með fjölbreyttri dagskrá. Stjórn Stykkishólmsdeildar Norræna félagsins, Sólborg Olga Bjarnadóttir gjaldkeri, Sigurlína Sigurbjörnsdóttir ritari og fráfarandi formaður Þórhildur Pálsdóttir veittu styrkinn á Fosshótel Stykkishólmi og það var ritari Eyrbyggjasögufélagsins, Anna…Lesa meira

true

Sker út grasker til að sinna sköpunarþörfinni og upplifa núvitund

Spjallað við sálfræðinginn, leikarann og graskers listamanninn Knút Haukstein Ólafsson Knútur Haukstein Ólafsson ólst upp í Reykjavík en flutti ásamt fjölskyldu sinni til Akraness árið 2010. Í dag er hann þrítugur, menntaður leikari og nýútskrifaður með BS í sálfræði en í náminu tengdi hann ýmislegt við sjálfan sig þegar hann lærði um einhverfu og ADHD.…Lesa meira

true

Veittist að lögreglu

Afskipti voru höfð af 33 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku. Þá voru teknar myndir af 18 ökumönnum með færanlegri hraðamyndavél. Einn ökumaður er grunaður um ölvun við akstur og veittist hann einnig að lögreglumönnum er af honum voru höfð afskipti en hann var yfirbugaður og handtekinn. Þá…Lesa meira