Fréttir

true

Malbiksframkvæmdir framundan í vikunni á tveimur stöðum í Hvalfjarðarsveit

Malbikstöðin fyrir Vegagerðina stefnir á að endurnýja slitlag á tveimur köflum Vesturlandsvegar milli Hvalfjarðarvegar við Melahvarfi og Grundartanga. Framkvæmdir ná yfir tvær nætur í þessari viku, dagana 26.-28. júní nk. þ.e. aðfararnótt fimmtudags 27. júní og aðfararnótt föstudags 28. júní. Stefnt er á að framkvæmdir hefjist kl. 21.00 bæði kvöldin og að opnað verði aftur…Lesa meira

true

Búið er að opna veginn um Kaldadal

Vegagerðin gaf í dag út Hálendiskort nr. 5 en þar er að finna upplýsingar um þá fjallvegi sem umferð er leyfileg um. Helstu breytingar frá síðasta korti eru þær að búið er að opna Kaldadalsveg (550) upp af Borgarfjarðardölum og Loðmundarfjarðarveg (F946).Lesa meira

true

Gott mót hjá Einari Margeiri í Serbíu

Einar Margeir Ágústsson sundmaður úr SA gerði góða ferð ásamt öðrum keppendum á Evrópumeistaramótið í sundi sem fram fór í Serbíu dagana 17.-23. júní. Keppt var í 50 metra útilaug og var hitinn um 30-36 gráður flesta dagana. Einar Margeir gerði sér lítið fyrir og bætti sig í öllum þremur sundum sínum og bætti Akranesmetið…Lesa meira

true

Víkingur í öðru sæti eftir þriðja sigurinn í röð

Það vantaði ekki fjörið og mörkin í leik Víkings Ó. og Hattar/Hugins í 2. deild karla í knattspyrnu sem fram fór á Ólafsvíkurvelli í gær. Leikurinn var opinn og skemmtilegur og liðin fengu fjölmörg færi fyrir utan mörkin sex sem voru skoruð í leiknum. Fyrirliðinn Luke Williams skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Víking með langskoti…Lesa meira

true

Kristín með brons í hnébeygju á HM

Borgfirðingurinn Kristín Þórhallsdóttir lauk keppni á heimsmeistaramótinu í klassískum kraftlyftingum í -84 kg flokki sem haldið var í Litháen um helgina.  Kristín raðaði niður metum í sínum flokki, setti alls þrjú heimsmet og stóð sig með prýði. Kristín byrjaði vel í hnébeygjunni þar sem hún lyfti seríunni 200-210-217.5 kg og hlaut bronsverðlaun í greininni. Þá…Lesa meira

true

Sumarliðahús víkur fyrir nýbyggingu

Nýverið var skrifað undir samninga vegna nýbyggingar við Borgarbraut 63 í Borgarnesi. Þar verður reist fjögurra hæða fjölbýlishús sem Brákarhlíð fasteignafélag byggir en um er að ræða samvinnuverkefni sem Brákarhlíð hjúkrunar- og dvalarheimili og Nemendagarðar Menntaskóla Borgarfjarðar standa í sameiningu að. Skrifað var undir samning við Borgarverk um jarðvegsskipti og rif á húsinu, sem í…Lesa meira

true

Skagakonur töpuðu nágrannaslagnum

Afturelding og ÍA áttust við í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu á föstudagskvöldið og var leikurinn á gervigrasvellinum í Mosfellsbæ. Skagakonur byrjuðu betur í leiknum, pressuðu hátt upp völlinn fyrstu 20 mínúturnar og fengu nokkur góð færi í fyrri hálfleiknum sem þeim tókst ekki að nýta. Það var því gegn gangi leiksins þegar Hildur Karítas Gunnarsdóttir…Lesa meira

true

Jafntefli hjá Breiðabliki og ÍA í Bestu

Það var ekki boðið upp á mörg tilþrifin í leik Breiðabliks og ÍA í Bestu deild karla í knattspyrnu sem fram fór á Kópavogsvelli í gærkvöldi. Blikar gátu með sigri skellt sér á topp deildarinnar á meðan Skagamenn hefðu getað fært sig nær toppliðunum með þremur stigum. Fyrri hálfleikur var með rólegasta móti, heimamenn voru…Lesa meira

true

Annir hjá björgunaraðilum á sjó í nótt

Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Neskaupstað annars vegar og á Patreksfirði hins vegar voru kölluð út í nótt og snemma í morgun til aðstoðar. Áhöfn björgunarskipsins Hafbjargar í Neskaupstað var kölluð út um klukkan hálf fimm í nótt vegna skipverja á smærri fiskibáti sem hafði slasast á fæti og ekki í ástandi til að sigla bátnum…Lesa meira

true

Alvarleg netárás á íslenskan fjölmiðil

Í gær var gerð stórfelld netárás á tölvukerfi allra miðla Árvakurs útgáfufélags í Reykjavík. Hún hafði þær afleiðingar að útsendingar K100 féllu niður og liggja enn niðri og birting mbl.is lá niðri í nokkra klukkutíma. Í tilkynningu frá Árvakri segir að stórfelld netárás hafi verið gerð á tölvukerfi fyrirtækisins. Tölvuárásárhópur þessi hefur gert árásir í…Lesa meira