Fréttir

true

Skrúðganga og setning Norðurálsmóts – Myndir

Klukkan ellefu í morgun fóru liðin á Norðurálsmótinu í knattspyrnu sem fram fer á Akranesi um helgina í skrúðgöngu frá Stillholti og upp að mótssvæðinu við Jaðarsbakka. Keppni hefst síðan klukkan hálfeitt og stendur til klukkan hálfsex í dag. Kvöldverður verður síðan fram reiddur frá klukkan 17-20 í Íþróttamiðstöðinni á Jaðarsbökkum.Lesa meira

true

Jarðvegsskipt fyrir nýju íþróttahúsi

Framkvæmdir eru hafnar vegna byggingar nýs íþróttahúss Hvalfjarðarsveitar við Heiðarborg. Um er að ræða stærstu einstöku framkvæmd sveitarfélagsins í rúman áratug. Húsið sem rísa mun á lóðinni er hannað af ASK arkitektum. Nú er í gangi fyrsti áfangi framkvæmdarinnar, þ.e. jarðvinna en í kjölfarið hefst uppsteypa, frágangur utanhúss ásamt grófjöfnun lóðar. Verktaki er K16 ehf.…Lesa meira

true

Framkvæmdir í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi

Töluverðar framkvæmdir eru nú í gangi innan dyra í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi. Stækka á kvennaklefa og útbúa sérklefa fyrir sundlaugargesti en ekki er komin tímasetning hvenær verkinu lýkur. Nú á sunnudaginn verður innilaugin tæmd og verður hún lokuð næstu tvær til þrjár vikurnar. Eftir að Landsmóti UMFÍ lýkur og stækkun kvennaklefa verður lokið er stefnan…Lesa meira

true

Dúxar Vesturlands

Dúxar framhaldsskólanna á Vesturlandi á vorönn eru ýmist nýkomnir heim úr útskriftarferðum um þessar mundir eða að njóta lífsins heima fyrir. Ole er nýkominn frá Spáni og Unnur frá Mexíkó en Bjarni ákvað að taka því rólega heima í Stykkishólmi áður en sumarvinnan byrjaði af fullum krafti. Þau kveðast spennt fyrir lífinu framundan en öll…Lesa meira

true

Ingibjörg Þóranna tekin við sem oddviti Dalabyggðar

Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar 11. júní síðastliðinn voru gerðar breytingar innan sveitarstjórnar. Eyjólfur Ingvi Bjarnason vék þá sem oddviti sveitarfélagsins en í hans stað var Ingibjörg Þóranna Steinudóttir kjörin til eins árs. Eyjólfur Ingvi hafði gegnt stöðu oddvita í sveitarstjórn frá árinu 2018 en Ingibjörg hefur verið varaoddviti frá kosningum 2020. Ingibjörg býr ásamt fjölskyldu…Lesa meira

true

Hreyfivika á Vallarseli

Þessi hressilegu börn og kennarar þeirra eru á leikskólanum Vallarseli á Akranesi. Þau voru á göngu framhjá ritstjórnarskrifstofu Skessuhorns á dögunum og leyfðu blaðamanni að smella mynd. Nú er í gangi hreyfivika í skólanum og var gönguferð á Langasand liður í henni.Lesa meira

true

Snæfellsbær fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir

Mikil hátíðardagskrá var í Snæfellsbæ í síðustu viku í tilefni þess að sveitarfélagið heldur upp á 30 ára afmæli sitt. Snæfellsbær varð til við fjögurra sveitarfélaga árið 1994 þegar sameinuð voru Ólafsvíkurkaupstaður, Neshreppur utan Ennis, Breiðavíkurhreppur og Staðarsveit. Blaðamaður Skessuhorns náði tali af Kristni Jónassyni bæjarstjóra Snæfellsbæjar, en sjálfur hefur hann gegnt stöðu bæjarstjóra samfleytt…Lesa meira

true

Norðurálsmótið hófst í dag – Myndir

Það var líf og fjör á æfingasvæðinu á Jaðarsbökkum í dag þegar blaðamaður Skessuhorns leit við. Fyrsti dagurinn á Norðurálsmótinu í knattspyrnu var í gangi þar sem drengir og stúlkur í 8. flokki sem eru á aldrinum 4-6 ára léku listir sínar. Foreldrar stóðu á hliðarlínunni og hvöttu sín börn og lið áfram í ágætis…Lesa meira

true

Styrkir greiddir út til fjárfestinga í kornrækt

Matvælaráðuneytið hefur úthlutað fjárfestingastuðningi í kornrækt 2024. Stuðningurinn er veittur til fjárfestinga í kornþurrkun, korngeymslum og tilheyrandi tækjabúnaði og er einn þáttur aðgerðaráætlunar þar sem gert er ráð fyrir að verja um tveimur milljörðum króna til átaks í kornrækt á árunum 2024-2028. Alls bárust 13 umsóknir og samkvæmt þeim er samanlögð fjárfesting umsækjenda 893 milljónir…Lesa meira

true

Líf í Lundi á laugardaginn

Skógræktarfélag Skilmannahrepps býður til viðburðarins „Líf í lundi í Álfholtsskógi“ laugardaginn 22. júní frá klukkan 12 til 16. Á dagskrá verður mandölugerð, plöntugreining, axarkast og tálgunarkennsla fyrir börn sem fer fram frá klukkan 13 til 15. Fræðsluganga um skóginn verður klukkan 14 og tekur um eina klukkustund. Í Furuhlíð verður ljósmyndasýning Áskels Þórissonar, þar sem…Lesa meira