Úr Álfholtsskógi í Hvalfjarðarsveit. Ljósm. rþ

Líf í Lundi á laugardaginn

Skógræktarfélag Skilmannahrepps býður til viðburðarins „Líf í lundi í Álfholtsskógi“ laugardaginn 22. júní frá klukkan 12 til 16. Á dagskrá verður mandölugerð, plöntugreining, axarkast og tálgunarkennsla fyrir börn sem fer fram frá klukkan 13 til 15. Fræðsluganga um skóginn verður klukkan 14 og tekur um eina klukkustund.

Líf í Lundi á laugardaginn - Skessuhorn