Kornþresking í Ásgarði í Borgarfirði. Ljósm. úr safni Skessuhorns/ mm

Styrkir greiddir út til fjárfestinga í kornrækt

Matvælaráðuneytið hefur úthlutað fjárfestingastuðningi í kornrækt 2024. Stuðningurinn er veittur til fjárfestinga í kornþurrkun, korngeymslum og tilheyrandi tækjabúnaði og er einn þáttur aðgerðaráætlunar þar sem gert er ráð fyrir að verja um tveimur milljörðum króna til átaks í kornrækt á árunum 2024-2028. Alls bárust 13 umsóknir og samkvæmt þeim er samanlögð fjárfesting umsækjenda 893 milljónir kr.

Styrkir greiddir út til fjárfestinga í kornrækt - Skessuhorn