
Norðurálsmótið hófst í dag – Myndir
Það var líf og fjör á æfingasvæðinu á Jaðarsbökkum í dag þegar blaðamaður Skessuhorns leit við. Fyrsti dagurinn á Norðurálsmótinu í knattspyrnu var í gangi þar sem drengir og stúlkur í 8. flokki sem eru á aldrinum 4-6 ára léku listir sínar. Foreldrar stóðu á hliðarlínunni og hvöttu sín börn og lið áfram í ágætis veðri. Mótið hófst um hádegisbilið og stendur þar til seinni partinn í dag.
Norðurálsmótið verður sett á morgun klukkan 11 með skrúðgöngu frá Stillholti og að Jaðarsbökkum þar sem setning mótsins fer fram. 7. flokkur drengja og stúlkna hefja mótið í kjölfarið, leikar hefjast kl.12.30 og er spilað alla helgina. Er fjölgun liða í mótinu á milli ára og má reikna með góðri stemningu og mikilli gleði.
Von er á frábærum gestum á mótið, þekktir atvinnumenn í knattspyrnu frá Akranesi verða á svæðinu ásamt því að tónlistarmaðurinn Háski mætir á kvöldvökuna með nýtt lag í farteskinu og Idol stjörnurnar Björgvin Þór og Jóna Margrét taka lagið.
Norðurálsmótið er skipulagt á forsendum iðkenda, með það í huga að allir séu með í leiknum til að skapa jákvæða og skemmtilega upplifun barna sem eru að stíga sín fyrstu skref í fótbolta.
Sýnt verður frá einstaka leikjum á ÍATV alla helgina og hægt að fylgjast með á YouTube.








