Fréttir

true

Komu heim með níu verðlaunapeninga af Sumarmóti SSÍ

Sumarmót Sundsambands Íslands fór fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði um helgina. Þar mætti besta sundfólk Íslands til keppni, en mótið er fyrir 14 ára og eldri. Sundfélag Akraness var með fimm keppendur sem allir syntu vel. Það voru þau Guðbjarni Sigþórsson, Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir, Sunna Arnfinnsdóttir, Viktoria Emilia Orlita og Kajus Jatautas. Enrique Snær Llorens…Lesa meira

true

Slasaðist við fall af hrossi

Laust eftir hádegi á laugardaginn var Björgunarsveitin Ok í Borgarfirði kölluð út, sem og sjúkrabíll og lögregla. Knapi, sem var í hópi hestafólks, hafði slasast við fall af hrossi sínu skammt ofan við Hvítá í landi Karlmanstungu. Slysstaður var nokkuð fjarri vegi og fóru björgunarsveitarmenn á jeppa og buggy bílum sveitarinnar að slysstað. Fékk sjúkraflutningamaður…Lesa meira

true

Til hamingju með daginn!

Þjóðhátíðardagur Íslendinga er í dag, 17. júní. Nú eru 80 ár frá því landið öðlaðist sjálfstæði frá Danmörku. Hátíðarhöld eru hvarvetna í tilefni dagsins og fólk hvatt til að þátttöku í þeim. Veðrið í dag verður fremur hæglátt en fremur þungbúið, en á samkvæmt veðurspá að hanga þurrt fram eftir degi. Skessuhorn óskar landsmönnum til…Lesa meira

true

Eldgos, missir og von

Nikolína Theodóra Snorradóttir frá Akranesi segir frá eldgosinu í Heimaey og rifjar upp æviskeið sitt í viðtali í Skessuhorni árið 2017 Nikolína er nýlega orðin sextug. Hún ólst upp í Vestmannaeyjum og var á sextánda aldursári þegar byrjaði að gjósa í Heimaey. Tvítug flutti hún upp á Akranes þar sem hún hefur búið í fjörutíu…Lesa meira

true

Framkvæmdir á gönguleið að Glym í Hvalfirði

Á síðasta ári hófust framkvæmdir á gönguleið upp að fossinum Glym í Hvalfirði að nýju eftir nokkurt hlé. Glymur er einn þekktasti áfangastaðurinn í Hvalfjarðarsveit og er fossinn á Náttúruminjaskrá. Hvalfjarðarsveit hefur fengið styrk frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir stígagerð við krefjandi aðstæður við austanvert Glymsgljúfur í Botnsdal. Arnheiður Hjörleifsdóttir er verkefnastjóri fyrir þessu verkefni. „Það…Lesa meira

true

Held við séum búnar að styrkja næstum allt hér í Dölunum

Rætt við Ernu Kristínu Hjaltadóttur, formann kvenfélagsins Fjólu í Dalabyggð Eftir að hafa keyrt nýjan þjóðveg, þjóðveg fortíðarinnar, er komið að Fellsenda í Miðdölum og tekur húsmóðirin á heimilinu vel á móti blaðamanni eftir aksturinn. „Við skulum ganga rólega hérna inn í stofu, því hér sefur þreytt fólk eftir næturvaktina í sauðburðinum,“ segir Erna þegar…Lesa meira

true

Öruggur sigur Víkings á Haukum

Haukar og Víkingur Ólafsvík áttust við í sjöundu umferð 2. deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi og var viðureignin á Birtu vellinum í Hafnarfirði. Fyrir leik var Víkingur í 2. sæti með tólf stig og Haukar í 7. sæti með átta stig og því mikið í húfi fyrir bæði lið. Luke Williams kom Víkingi yfir…Lesa meira

true

Í dagsins önn með Eglu og fuglunum

Rætt við Þórunni Kjartansdóttur, forstöðumann menningarmála í Borgarbyggð Nýverið opnaði byggðasafnssýningin „Í dagsins önn – Framþróun í heimilistækjum um miðja 20. öld“ í Safnahúsi Borgarfjarðar. Þórunn Kjartansdóttir og Kolbrún Anna Björnsdóttir standa að sýningunni ásamt öðru starfsfólki Safnahússins. Kolbrún hannaði ytra útlit sýningarinnar, litasamsetningu og veggspjöld og Þórunn Kjartansdóttir sá um textagerð og gripaval. „Við…Lesa meira

true

Kári á toppnum eftir stórsigur á ÍH

Leikmenn Kára buðu enn og aftur upp á markaveislu í Akraneshöllinni þegar þeir mættu liði ÍH í 3. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Kári hefur spilað fimm heimaleiki til þessa og skorað í þeim alls 22 mörk eða 4,4 mörk að meðaltali. Fyrsta mark leiksins kom á 11. mínútu þegar Axel Freyr Ívarsson stakk…Lesa meira

true

Niðurrif hafið á Kleppjárnsreykjum

Í gærmorgun hófst niðurrif á hluta skólabyggingar Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum. Taka nú við tvær til þrjár vikur í niðurrif og frágang áður en hafist er handa við nýbyggingu skólans. Það er fyrirtækið Sjammi ehf. á Akranesi sem sér um verkið.Lesa meira