Fréttir

true

Skóflustunga að húsi þar sem kynslóðirnar munu koma saman

Í blíðskaparveðri í gær var blásið til hátíðar á lóðinni Borgarbraut 63 í Borgarnesi. Tilefnið var að taka fyrstu skóflustungu að nýju fjölbýlishúsi sem Brákarhlíð fasteignafélag mun byggja. Skessuhorn hefur áður greint frá aðdraganda þessarar byggingar en hún verður samvinnuverkefni sem Brákarhlíð hjúkrunar- og dvalarheimili og Nemendagarðar Menntaskóla Borgarfjarðar standa að. Byggt verður fjögurra hæða…Lesa meira

true

Víkingur vann sigur á KF og er enn án taps

Víkingur tók á móti botnliði KF í 2. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og var viðureignin á Ólafsvíkurvelli. Heimamenn gátu með sigri komist í 2. sæti deildarinnar og KF lyft sér af botninum. Víkingur hafði gert jafntefli í síðustu tveimur leikjum en KF vann sinn fyrsta sigur gegn KFA í síðustu umferð sem komst…Lesa meira

true

Þrír tapleikir í röð hjá Skallagrími

Skallagrímur spilaði gegn liði Kríunnar á laugardaginn í leik í fjórðu deildinni í knattspyrnu en spilað var á Vivaldivellinum á Seltjarnarnesi. Leikmenn Kríu byrjuðu betur og náðu að spila lið Skallagríms oftar en ekki til vandræða. Leikurinn jafnaðist örlítið fyrir hálfleik og náðu Skallagrímsmenn að halda betur í boltann en mikið munaði um yfirvegun Elís…Lesa meira

true

Einn lést í árekstrinum í Norðurárdal í gær

Á níunda tímanum í gærkvöldið varð harður árekstur tveggja bíla á þjóðveginum skammt frá Hraunsnefi í Norðurárdal í Borgarfirði. Fólksbifreið sem ekið var í norður skall framan á jeppa sem kom úr gagnstæðri átt. Lögreglan á Vesturlandi hefur nú greint frá því að ökumaður fólksbifreiðarinnar lést en ökumaður og farþegi í jeppabifreiðinni voru fluttir með…Lesa meira

true

Guðrún Karítas keppti á sínu fyrsta Evrópumeistaramóti

Borgfirðingurinn Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir keppti á Evrópumóti í frjálsum íþróttum í gærmorgun. Guðrún keppti í forkeppni í sleggjukasti en missti af úrslitasæti. Hún kastaði lengst 67,57 metra og hafnaði í 17. sæti á mótinu. Guðrún Karítas og Elísabet Rut Rúnarsdóttir kepptu í sleggjukasti fyrir Íslands hönd á mótinu en þær lentu í Róm á laugardag…Lesa meira

true

Kveikt í sinu á þremur stöðum

Slökkvilið Borgarbyggðar var snemma í morgun kallað út vegna sinuelds á nokkrum stöðum í vegkantinum skammt frá Hítará á Mýrum. Að sögn Bjarna K Þorsteinssonar varaslökkviliðsstjóra gekk vel að slökkva eldana, en veður var kyrrt og útbreiðsla þeirra því hæg. Bjarni sagði að greinilega hefði verið kveikt í á þremur stöðum við veginn. Hvetur hann…Lesa meira

true

Tveir fluttir með þyrlu eftir árekstur

Á níunda tímanum í gærkvöldi varð harður árekstur tveggja bíla á þjóðveginum í Norðurárdal í Borgarfirði, fólksbíll og jeppi skullu saman. Tækjabíll slökkviliðs var m.a. kallaður út þar sem beita þurfti klippum á báða bílana. Að beiðni lögreglu var þyrla gæslunnar einnig kölluð út og flutti hún tvo slasaða á sjúkrahús. Alls voru þrír í…Lesa meira

true

Margmenni þegar Bílás bauð á bílasýningu

Það var margt um manninn síðastliðinn laugardag þegar Bílasalan Bílás á Akranesi, í samstarfi við BL, bauð í grillveislu og bílasýningu. Sýningin var í tilefni þess að Bílás er nú orðinn söluaðili BL bíla á Vesturlandi. Gestir gátu gætt sér á grilluðum pylsum og drykkjum og strax í hádeginu var áhugasamt fólk mætt. Á myndinni…Lesa meira

true

Leggja til eins prósents aukningu þorskkvóta

Hafrannsóknastofnun kynnti í síðustu viku úttekt á ástandi nytjastofna og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár. Lögð er til 1% hækkun aflamarks þorsks fyrir næsta fiskveiðiár. Byggir sú ráðgjöf á aflareglu stjórnvalda. Samkvæmt því verður þorskkvótinn á næsta ári 213 .214 tonn. Gert er ráð fyrir að stærð viðmiðunarstofns þorsks verði svipuð næstu tvö til þrjú ár þegar…Lesa meira