Fulltrúar tveggja kynslóða tóku fyrstu skóflustunguna að húsinu; þau Jóhanna Rún Mosbech Egilsdóttir menntaskólanemi og Sigvaldi Arason íbúi á Brákarhlíð. Inga Dóra Halldórsdóttir er á hliðarlínunni. Ljósmyndir: mm

Skóflustunga að húsi þar sem kynslóðirnar munu koma saman

Í blíðskaparveðri í gær var blásið til hátíðar á lóðinni Borgarbraut 63 í Borgarnesi. Tilefnið var að taka fyrstu skóflustungu að nýju fjölbýlishúsi sem Brákarhlíð fasteignafélag mun byggja. Skessuhorn hefur áður greint frá aðdraganda þessarar byggingar en hún verður samvinnuverkefni sem Brákarhlíð hjúkrunar- og dvalarheimili og Nemendagarðar Menntaskóla Borgarfjarðar standa að. Byggt verður fjögurra hæða hús á lóðinni eftir að búið verður að rífa eldra íbúðarhús sem þar stendur og taka grunn. Skrifað var undir samning við Borgarverk um jarðavegsvinnu og rif á húsinu.