Pétur Pétursson yngri að landa úr Bárði. Ljósm. úr safni/af

Leggja til eins prósents aukningu þorskkvóta

Hafrannsóknastofnun kynnti í síðustu viku úttekt á ástandi nytjastofna og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár. Lögð er til 1% hækkun aflamarks þorsks fyrir næsta fiskveiðiár. Byggir sú ráðgjöf á aflareglu stjórnvalda. Samkvæmt því verður þorskkvótinn á næsta ári 213 .214 tonn. Gert er ráð fyrir að stærð viðmiðunarstofns þorsks verði svipuð næstu tvö til þrjú ár þegar árgangarnir frá 2020 og 2021 koma að fullu inn í viðmiðunarstofninn þar sem þeir eru nú metnir við og undir meðallagi. Aflamark ýsu verður 76.774 tonn sem er nær óbreytt ráðgjöf frá yfirstandandi fiskveiðiári. Ráðgjöf fyrir ufsa samkvæmt aflareglu er nær óbreytt frá yfirstandandi fiskveiðiári og er 66 .705 tonn.

Leggja til eins prósents aukningu þorskkvóta - Skessuhorn