
Einn lést í árekstrinum í Norðurárdal í gær
Á níunda tímanum í gærkvöldið varð harður árekstur tveggja bíla á þjóðveginum skammt frá Hraunsnefi í Norðurárdal í Borgarfirði. Fólksbifreið sem ekið var í norður skall framan á jeppa sem kom úr gagnstæðri átt. Lögreglan á Vesturlandi hefur nú greint frá því að ökumaður fólksbifreiðarinnar lést en ökumaður og farþegi í jeppabifreiðinni voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar til aðhlynningar á Landsspítalann. Tækjabíll slökkviliðs var m.a. kallaður út þar sem beita þurfti klippum á báða bílana. Lögreglan á Vesturlandi er með tildrög slyssins til rannsóknar.