
Margmenni þegar Bílás bauð á bílasýningu
Það var margt um manninn síðastliðinn laugardag þegar Bílasalan Bílás á Akranesi, í samstarfi við BL, bauð í grillveislu og bílasýningu. Sýningin var í tilefni þess að Bílás er nú orðinn söluaðili BL bíla á Vesturlandi. Gestir gátu gætt sér á grilluðum pylsum og drykkjum og strax í hádeginu var áhugasamt fólk mætt. Á myndinni eru þeir Alexander og Jón Haukur sölumenn hjá Bílás ásamt Benedikt verkefnastjóra fyrirtækjalausna hjá BL.