Fréttir

true

TeamTinna hélt söngveislu í Bíóhöllinni

Síðastliðið föstudagskvöld stóð félagið TeamTinna á Akranesi fyrir söngveislu þar sem gleðin var við völd; Sing-a-long partý í Bíóhöllinni. Þar mætti söngkonan Guðrún Árný á svið og stýrði fjöldasöng í anda – og til minningar um gleðisprengjuna Tinnu Ósk Grímarsdóttur sem féll frá í byrjun síðasta árs. Fólk bar fram óskir um lög en Guðrún…Lesa meira

true

Markasúpa í Akraneshöllinni

Kári og Vængir Júpiters mættust á föstudagskvöldið í 3. deild karla í knattspyrnu í Akraneshöllinni þar sem boðið var upp á alvöru markaveislu og almenna skemmtun. Fjörið hófst á 17. mínútu þegar Axel Freyr Ívarsson kom Kára yfir en aðeins tveimur mínútum síðar jafnaði Rafael Máni Þrastarson metin fyrir gestina. Hann var síðan aftur á…Lesa meira

true

Misserisverkefni Háskólans á Bifröst varin í Hjálmakletti

Misserisvarnir nemenda við Háskólann á Bifröst eru á meðal þess sem veitir skólanum sérstöðu í samanburði við aðra háskóla. Þessi siður; að nemendur, kennarar og starfsfólk hittist á vorin og rýni til gagns málefni líðandi stundar. hefur fylgt Háskólanum á Bifröst frá upphafi. Misserisvarnir felast í því að nemendur koma sér saman um rannsóknarverkefni. Úrvinnsla…Lesa meira

true

Skagakonur duttu út eftir vítaspyrnukeppni

Grindavík og ÍA áttust við í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn á Stakkavíkurvellinum í Safamýri. Tinna Hrönn Einarsdóttir kom Grindavík yfir í leiknum á 41. mínútu þegar hún fékk boltann vel fyrir utan vítateig, hún sneri varnarmann ÍA af sér og þrumaði boltanum með vinstri fæti upp í samskeytin…Lesa meira

true

Luke Williams hetja Ólsara gegn Þrótti

Víkingur Ólafsvík tók á móti Þrótti Vogum í þriðju umferð 2. deildar karla í knattspyrnu á laugardaginn og fór leikurinn fram á Ólafsvíkurvelli við góðar aðstæður en frekar kalt var samt í veðri. Luke Williams kom heimamönnum yfir í leiknum á 20. mínútu með marki úr vítaspyrnu og staðan 1-0 í hálfleik. Dómari leiksins, Arnar…Lesa meira

true

Fögnuðu sjötíu ára fermingarafmæli

Á Hvítasunnudag voru tíu börn fermd í Ólafsvíkurkirkju af séra Ægi Erni Sveinssyni. Börn sem eru fædd árið 1940 voru einnig saman komin í kirkjunni til þess að fagna 70 ára fermingar afmæli sínu. Árið 1954 voru níu börn fermd í Ólafsvík af séra Magnúsi Guðmundssyni. Fermingarhópurinn hefur öll þessi ár haft gott samband sín…Lesa meira

true

Söngleikurinn Galdur sýndur í Vinaminni á fimmtudaginn

Söngleikurinn Galdur er nýr íslenskur söngleikur eftir Helga Þór Ingason sem fluttur verður í tónleikauppfærslu í Vinaminni á Akranesi fimmtudaginn 23. maí kl. 20. Verður það síðasti viðburðurinn á vegum Kalman listafélags í vor. Sagan gerist á Íslandi seint á 17. öld, á erfiðum tímum í íslensku samfélagi. Öfund, illska og fáfræði eru aflvakar atburðarásar…Lesa meira

true

Vill verða sinn eigin herra við veiðarnar

Birgir Alexandersson er einn af nýliðunum á strandveiðum. Hann er nýbúinn að festa kaup á sínum fyrsta báti en hann er reyndar vanur sjómaður, hefur róið á stærri skipum undanfarin ár frá Suðurnesjum. En Birgir hefur mikinn áhuga á fiskveiðum og langaði að vera sinn eigin herra á strandveiðum. Vel hefur gengið hjá Birgi í…Lesa meira

true

Liðnir tímar og nýir fléttaðir saman á Breið

Á opnu húsi sem Breið nýsköpunarsetur á Akranesi stóð fyrir síðdegis á föstudaginn var ýmislegt á dagskrá. Meðal annars voru kynntar niðurstöður skýrslu Breiðar um þara sem auðlind á Vesturlandi. Þá voru frumkvöðlar og fyrirtæki sem hafa starfsaðstöðu í húsinu með kynningar á því starfi sem þar fer fram. Fyrrum starfsmenn í húsinu voru sérstaklega…Lesa meira

true

Fjórum sýningum bætt við á Diskóeyjuna

Brekkubæjarskóli á Akranesi hefur undanfarna daga sýnt Diskóeyjuna í Bíóhöllinni við afar góða dóma. Verkið er fjörugur og litríkur söngleikur sem er ferðalag inn í diskóveröldina. Uppselt hefur verið á allar auglýstar sýningar til þessa og hefur nú fjórum sýningum verið bætt við sýningarplanið. Verða þær fimmtudaginn 23. maí kl. 18, föstudaginn 24. maí klukkan…Lesa meira