
Gestir kynna sér starfsemi fyrirtækja í Breið þróunarsetri. Ljósmyndir: mm
Liðnir tímar og nýir fléttaðir saman á Breið
Á opnu húsi sem Breið nýsköpunarsetur á Akranesi stóð fyrir síðdegis á föstudaginn var ýmislegt á dagskrá. Meðal annars voru kynntar niðurstöður skýrslu Breiðar um þara sem auðlind á Vesturlandi. Þá voru frumkvöðlar og fyrirtæki sem hafa starfsaðstöðu í húsinu með kynningar á því starfi sem þar fer fram. Fyrrum starfsmenn í húsinu voru sérstaklega boðnir velkomnir á viðburðinn m.a. til að skoða minningarhorn; myndir úr Haraldarhúsi þar sem deilt var minningum frá tímum fiskvinnslu í húsinu. Loks rifjaði Valný Ben, matráður HB um árabil, upp gamla takta og bauð upp á sína margrómuðu fiskisúpu.