
Nemendur í 8.-10. bekk í Brekkubæjarskóla á Akranesi standa að sýningunni. Ljósm. vaks
Fjórum sýningum bætt við á Diskóeyjuna
Brekkubæjarskóli á Akranesi hefur undanfarna daga sýnt Diskóeyjuna í Bíóhöllinni við afar góða dóma. Verkið er fjörugur og litríkur söngleikur sem er ferðalag inn í diskóveröldina.
Uppselt hefur verið á allar auglýstar sýningar til þessa og hefur nú fjórum sýningum verið bætt við sýningarplanið. Verða þær fimmtudaginn 23. maí kl. 18, föstudaginn 24. maí klukkan 18, og tvær sýningar laugardaginn 25. maí klukkan 13 og 17.