Fréttir

true

Vill verða sinn eigin herra við veiðarnar

Birgir Alexandersson er einn af nýliðunum á strandveiðum. Hann er nýbúinn að festa kaup á sínum fyrsta báti en hann er reyndar vanur sjómaður, hefur róið á stærri skipum undanfarin ár frá Suðurnesjum. En Birgir hefur mikinn áhuga á fiskveiðum og langaði að vera sinn eigin herra á strandveiðum. Vel hefur gengið hjá Birgi í…Lesa meira

true

Liðnir tímar og nýir fléttaðir saman á Breið

Á opnu húsi sem Breið nýsköpunarsetur á Akranesi stóð fyrir síðdegis á föstudaginn var ýmislegt á dagskrá. Meðal annars voru kynntar niðurstöður skýrslu Breiðar um þara sem auðlind á Vesturlandi. Þá voru frumkvöðlar og fyrirtæki sem hafa starfsaðstöðu í húsinu með kynningar á því starfi sem þar fer fram. Fyrrum starfsmenn í húsinu voru sérstaklega…Lesa meira

true

Fjórum sýningum bætt við á Diskóeyjuna

Brekkubæjarskóli á Akranesi hefur undanfarna daga sýnt Diskóeyjuna í Bíóhöllinni við afar góða dóma. Verkið er fjörugur og litríkur söngleikur sem er ferðalag inn í diskóveröldina. Uppselt hefur verið á allar auglýstar sýningar til þessa og hefur nú fjórum sýningum verið bætt við sýningarplanið. Verða þær fimmtudaginn 23. maí kl. 18, föstudaginn 24. maí klukkan…Lesa meira

true

Kvikumagn undir Svartsengi aldrei verið meira frá 10. nóvember

Heildarmagn kviku í kvikuhólfinu undir Svartsengi á Reykjanesi hefur aldrei verið meira frá því fyrir 10. nóvember í fyrra þegar hinar miklu jarðhræringar urðu. „Huga þarf að fleiri sviðsmyndum ef kvikusöfnun heldur áfram án kvikuhlaups eða eldgoss,“ segir í nýrri tilkynningu frá Veðurstofunni. Nú hafa um 16 milljón rúmmetrar af kviku bæst við kvikuhólfið frá…Lesa meira

true

Gul viðvörun frá klukkan 13 til 22

Eftir hádegi í dag, hvítasunnudag, gengur í austan 13-20 m/s um vestanvert landið. Hvassast verður í vindstrengjum við fjöll. Gul viðvörun vegna hvassviðris er á spásvæðinu við Faxaflóa til kl. 22 í kvöld, en sömuleiðis er viðvörun fyrir Suðurland. „Varasamt fyrir vegfarendur með aftanívagna eða á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Fólk er…Lesa meira

true

Erum á rangri leið í tannheilbrigðismálum

Viðtal við Jónas Geirsson tannlækni sem birtist í Skessuhorni árið 2007 Hvernig skyldi standa á því að í velmegunarþjóðfélagi eins og á Íslandi séu íslensk börn, rétt eins og hér á öldum áður, að gráta sig í svefn vegna tannpínu? Dæmi eru um að börn niður í þriggja ára aldur séu með allt að16 tennur…Lesa meira

true

Húsasmiðurinn sem varð lögregluþjónn

Viðtal við lögregluþjóninn Viðar Einarsson sem birtist í Skessuhorni árið 2007 Það ratar sjaldnast á síður fréttablaða þegar breytingar verða í hópi starfsmanna fyrirtækja og stofnana. Á árum áður skiptu flestir sjaldan um vinnu á lífsleiðinni. Nú þykir ekki óalgengt að menn skipti um störf á 5-10 ára fresti og margir gera það mun oftar.…Lesa meira

true

Mótormessa var haldin í Reykholti

Á uppstigningardag var messað í Reykholti í Borgarfirði. Einn ungur maður var fermdur við athöfnina, séra Hildur Björk Hörpudóttir þjónaði fyrir altari en ræðumaður dagsins var Rúnar Sigurjónsson, formaður Fornbílaklúbbs Íslands. Á mótormessu koma margir akandi á eldri bílum og mátti á kirkjuhlaðinu sjá nokkra tugi bíla, gljáfægða og hátíðlega. Tryggvi Konráðsson húsvörður í Reykholti…Lesa meira

true

Líf og fjör við Borgarbraut í Borgarnesi

Nemendur við Grunnskóla Borgarness voru í dag að tína rusl við Borgarbrautina í Borgarnesi en á sama tíma hófust malbikunarframkvæmdir frá gatnamótum Skallagrímsgötu og að gatnamótum Böðvarsgötu. Fjölmargir áhugasamir vegfarendur stoppuðu við framkvæmdirnar og drógu að sér ilminn af nýlögðu malbikinu. Framkvæmdir við götuna hófust 1. júní 2022 en nú á eftir að ljúka frágangi…Lesa meira

true

Íhuga að hætta framleiðslu neftóbaks

Sala neftóbaks heldur áfram að dragast saman og einungis seldust um 10 tonn á síðasta ári. Þetta kemur fram í ársskýrslu ÁTVR. Nýjar vörur á markaðnum; nikótínpúðar, sem ekki bera tóbaksgjald og eru þar af leiðandi mun ódýrari en íslenska neftóbakið, hafa tekið yfir markaðinn. „Ef svo fer sem horfir með íslenska neftóbakið er aðeins…Lesa meira