Kvikumagn undir Svartsengi aldrei verið meira frá 10. nóvember

Heildarmagn kviku í kvikuhólfinu undir Svartsengi á Reykjanesi hefur aldrei verið meira frá því fyrir 10. nóvember í fyrra þegar hinar miklu jarðhræringar urðu. „Huga þarf að fleiri sviðsmyndum ef kvikusöfnun heldur áfram án kvikuhlaups eða eldgoss,“ segir í nýrri tilkynningu frá Veðurstofunni. Nú hafa um 16 milljón rúmmetrar af kviku bæst við kvikuhólfið frá 16. mars. Auknar líkur eru taldar á nýju kvikuhlaupi og öðru eldgosi næstu daga og líklegast talið að gjósi á Sundhnúksgígaröðinni. Fyrirvari á eldgosi gæti orðið mjög stuttur.

Kvikumagn undir Svartsengi aldrei verið meira frá 10. nóvember - Skessuhorn