
Bílar á hlaði og fólk í messu. Ljósmyndir: mm
Mótormessa var haldin í Reykholti
Á uppstigningardag var messað í Reykholti í Borgarfirði. Einn ungur maður var fermdur við athöfnina, séra Hildur Björk Hörpudóttir þjónaði fyrir altari en ræðumaður dagsins var Rúnar Sigurjónsson, formaður Fornbílaklúbbs Íslands. Á mótormessu koma margir akandi á eldri bílum og mátti á kirkjuhlaðinu sjá nokkra tugi bíla, gljáfægða og hátíðlega. Tryggvi Konráðsson húsvörður í Reykholti og bíladellukarl bauð unga fólkinu í ökuferð í tunnulest sem dregin var af sláttutraktor sem hann ók. Nemendur í níunda bekk Grunnskóla Borgarfjarðar seldu svo veitingar til fjáröflunar fyrir ferðalag sitt. Dagurinn var hinn fallegasti; sól og blíða, og undi fólk sér vel í vorblíðunni.