Fréttir

true

Mynd Sigurðar Más valin ein af fréttaljósmyndum ársins

Forsíðumynd Sigurðar Más Harðarsonar úr 11. tölublaði Bændablaðsins í fyrra var valin ein af bestu fréttaljósmyndum ársins 2023 og prýðir nú sýningu Blaðaljósmyndarafélags Íslands sem stendur yfir í Hafnarhúsinu. Sigurður Már er Skagamaður í húð og hár og hefur starfað sem blaðamaður hjá Bændablaðinu frá árinu 2008, en tók sín fyrstu spor í blaðamennsku hjá…Lesa meira

true

Atvinnuleysi mældist 4,1% í mars

Nýbirtar tölur Hagstofu Íslands greina frá því að í mars 2024 voru 9.500 atvinnulausir samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 4,1%, hlutfall starfandi á vinnumarkaði var 77,8% og atvinnuþátttaka var 81,1%. Atvinnuleysi jókst um 0,5 prósentustig á milli mánaða á sama tíma og hlutfall starfandi minnkaði um 0,6 prósentustig.Lesa meira

true

“Var hársbreidd frá að verða padda á framhluta mjólkurbílsins”

Vegagerðin bauð til morgunfundar í húsakynnum sínum í Suðurhrauni í Garðabæ í gærmorgun. Öryggi starfsfólks við vegavinnu var þar til umræðu en fundurinn var samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og Samgöngustofu. Vitundarátakið; „Aktu varlega – mamma og pabbi vinna hér,“ var kynnt en í sumar verður sett upp skilti við athafnasvæði verktaka, til að minna fólk á að…Lesa meira

true

Skipulagsbreytingar hjá Hvalfjarðarsveit

Ný deild, Umhverfis- og skipulagsdeild, hefur verið stofnuð innan stjórnsýslu Hvalfjarðarsveitar. Helstu verkefni nýrrar deildar eru á sviði skipulags-, framkvæmda- og byggingarmála, en auk þess umhverfis-, náttúruverndar- og landbúnaðarmála. Innan deildarinnar munu starfa deildarstjóri og þrír verkefnastjórar. Jökull Helgason verður deildarstjóri en hann hefur starfað fyrir sveitarfélagið í skipulags- og byggingarmálum síðan í apríl 2021.…Lesa meira

true

Fæstir kjósendur í Norðvesturkjördæmi

Þjóðskrá hefur tekið saman tölulegar upplýsingar úr kjörskrá sem gerð hefur verið fyrir forsetakosningar sem fram fara laugardaginn 1. júní nk. Heildarfjöldi kjósenda er 266.935, konur eru 133.868 en karlar eru heldur færri eða 132.921. Fjöldi aðila með hlutlausa kynskráningu eða kynsegin er 146. Flesta kjósendur er að finna í Suðvesturkjördæmi eða 77.967 og fæstir…Lesa meira

true

Útskriftarnemar kynntu lokaverkefni sín

Það var opið hús í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í gær þegar útskriftarnemar kynntu lokaverkefni sín. Verkefnin voru fjölbreytt eins og áður en þar var að finna hlaðvarp, heimildamynd, Tomma og Jenna teiknimynd, líkan af Grundarfjarðarkirkju, lampa, litabók, skáldsögu og margt fleira. Krakkarnir komu hver á fætur öðrum upp í pontu og kynntu verkefnin sín fyrir gestum.…Lesa meira

true

Stýrivextir áfram þeir sömu

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í morgun um þá ákvörðun sína að halda stýrivöxtum óbreyttum í 9,25%. Þannig hafa þeir verið frá því í ágúst á síðasta ári. Næsti vaxtaákvörðunardagur verður ekki fyrr en í ágúst. Í yfirlýsingu stofnunarinnar kemur m.a. fram að verðbólga hefur áfram hjaðnað og mældist 6% í apríl. Verðbólga án húsnæðisliðar hefur…Lesa meira

true

Bátur fékk í skrúfuna vestur af Akranesi

Í gærkvöldi barst aðstoðarbeiðni til Landsbjargar frá skipstjóra fiskibáts sem þá var staddur við Múlahraun á Faxaflóa, vestur af Akranesi. Skipverjar höfðu þá orðið fyrir því óhappi að fá veiðarfæri í skrúfuna og óskuðu eftir drætti til lands. Björgunarbátarnir Sjöfn og Stefnir frá Reykjavík og Kópavogi voru kallaðir til aðstoðar og héldu úr höfn um…Lesa meira

true

Metár að baki hjá íslenskri ferðaþjónustu

Síðasta ár var metár í íslenskri ferðaþjónustu á flesta mælikvarða, þó ekki hafi verið slegið met í fjölda ferðamanna. Hlutur ferðaþjónustunnar af landsframleiðslu var um 8,8% í fyrra og hefur aldrei verið stærri. Í nýrri hagspá er gert ráð fyrir að fjöldi ferðamanna í ár jafni metið frá 2018 og að verðmætin sem greinin skili…Lesa meira

true

Miklar framkvæmdir og góð afkoma Snæfellsbæjar á síðasta ári

Ársreikningur bæjarsjóðs Snæfellsbæjar var tekinn til síðari umræðu á fundi bæjarstjórnar síðdegis í gær. Þar kemur meðal annars fram að rekstur Snæfellsbæjar kom mun betur út en fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir og var rekstur samstæðunnar jákvæður um 350 milljónir króna, en fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir jákvæðri afkomu upp á um 104 m.kr. Þar…Lesa meira