Frá vinstri: Gísli Tryggvason verkefnastjóri Umhverfis- og skipulagsdeildar, Hlynur Sigurdórsson verkefnastjóri framkvæmda og eigna, Helga Harðardóttir verkefnastjóri Umhverfis- og skipulagsdeildar, Jökull Helgason deildarstjóri og Guðný Tómasdóttir móttökuritari og skjalavörður. Ljósm: Hvalfjarðarsveit.

Skipulagsbreytingar hjá Hvalfjarðarsveit

Ný deild, Umhverfis- og skipulagsdeild, hefur verið stofnuð innan stjórnsýslu Hvalfjarðarsveitar. Helstu verkefni nýrrar deildar eru á sviði skipulags-, framkvæmda- og byggingarmála, en auk þess umhverfis-, náttúruverndar- og landbúnaðarmála. Innan deildarinnar munu starfa deildarstjóri og þrír verkefnastjórar. Jökull Helgason verður deildarstjóri en hann hefur starfað fyrir sveitarfélagið í skipulags- og byggingarmálum síðan í apríl 2021. Jökull mun hefja störf sem deildarstjóri 1. júní nk.