Hér eru starfsmenn Vegagerðarinnar skipta út og lagfæra vegastikur við Akrafjallsveg. Ljósm. úr safni/ eöe

“Var hársbreidd frá að verða padda á framhluta mjólkurbílsins”

Vegagerðin bauð til morgunfundar í húsakynnum sínum í Suðurhrauni í Garðabæ í gærmorgun. Öryggi starfsfólks við vegavinnu var þar til umræðu en fundurinn var samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og Samgöngustofu. Vitundarátakið; „Aktu varlega – mamma og pabbi vinna hér,“ var kynnt en í sumar verður sett upp skilti við athafnasvæði verktaka, til að minna fólk á að aka varlega, enda séu mæður, feður, ömmur, afar, frændur og frænkur að störfum við vegina.

"Var hársbreidd frá að verða padda á framhluta mjólkurbílsins" - Skessuhorn