
Verðlaunamynd Sigurðar Más.
Mynd Sigurðar Más valin ein af fréttaljósmyndum ársins
Forsíðumynd Sigurðar Más Harðarsonar úr 11. tölublaði Bændablaðsins í fyrra var valin ein af bestu fréttaljósmyndum ársins 2023 og prýðir nú sýningu Blaðaljósmyndarafélags Íslands sem stendur yfir í Hafnarhúsinu. Sigurður Már er Skagamaður í húð og hár og hefur starfað sem blaðamaður hjá Bændablaðinu frá árinu 2008, en tók sín fyrstu spor í blaðamennsku hjá Skessuhorni um aldamótin.