
Fiskistofa mun samkvæmt reglugerð fjölga dögum hjá þeim skipum sem eru á grásleppuveiðum eða eiga eftir að fara á grásleppuveiðar. Ráðuneytið gaf út reglugerð sem tók gildi í gær. Í henni er veiðidögum í grásleppu fjölgað úr 40 í 55.Lesa meira

Fiskistofa mun samkvæmt reglugerð fjölga dögum hjá þeim skipum sem eru á grásleppuveiðum eða eiga eftir að fara á grásleppuveiðar. Ráðuneytið gaf út reglugerð sem tók gildi í gær. Í henni er veiðidögum í grásleppu fjölgað úr 40 í 55.Lesa meira

Í síðustu viku var fjölmenningarþema í Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit þar sem unnið var með menningu níu landa sem öll tengjast nemendum skólans á einhvern hátt. Nemendur unnu part úr degi í aldursblönduðum hópum og markmið verkefnisins voru m.a. að stuðla að gagnkvæmri virðingu og skilningi, varpa ljósi á fjölbreytta menningarheima og síðast en ekki síst…Lesa meira

Á morgun, miðvikudag, verða tvennir áhugaverðir tónleikar haldnir í Tónbergi, sal Tónlistarskóla Akraness. Fyrri tónleikarnir verða kl. 17 og þeir síðari kl. 20. „Tónleikunum svipar til tónleikanna Ungir – gamlir sem voru haldnir um tíma í Bíóhöllinni. Á tónleikunum verða leikin og sungin íslensk dægurlög frá árunum 1960 – 2023. Þar koma fram nemendur skólans…Lesa meira

Fiskmarkaður Íslands opnaði í apríl útibú sitt á ný á Akranesi sem staðsett er á Faxabraut 5. Að sögn Ragnars Smára Guðmundssonar, framkvæmdastjóra hjá Fiskmarkaði Íslands, var gengið í það að fá öll þau leyfi sem þurfti til að geta starfrækt fiskmarkað í húsnæðinu. „Það er von okkar hjá Fiskmarkaði Íslands að geta haldið úti…Lesa meira

Eftir að fæðingarorlofi þorsksins lauk á sunnudaginn fóru flestir bátar frá Snæfellsbæ á sjó í gær. Var algjör mokafli í öll veiðarfæri. Dragnótarbátar voru með upp í 30 tonn eftir stuttan dag og köstuðu þeir dragnótinni 2-3 sinnum og létu það nægja til þess að spara kvótann. Sama átti við um handfærabáta; stutt að róa…Lesa meira

Í gær var hafist handa við að rífa bátinn Tind SH sem hefur staðið við Hrafnabjarg í Ólafsvík sem eins konar kennileiti fyrir bæinn á afar fallegum stað. Mikill sjónarsviptir er því af brotthvarfi bátsins. Tindur SH hefur staðið á þessum stað í rétt 30 ár og hefur Lionsklúbbur Ólafsvíkur séð um umhirðu á bátnum…Lesa meira

Það var boðið upp á spennu, dramatík og markaveislu í Akraneshöllinni þegar ÍA og Selfoss mættust í 1. umferð Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi. Gestirnir byrjuðu betur í leiknum og skoruðu fyrsta mark leiksins á 4. mínútu. Selfoss fékk þá hornspyrnu og skallaði fyrirliðinn Unnur Dóra Bergsdóttir sem var á auðum sjó í teignum…Lesa meira

Blaðamaður Skessuhorns ók niður Aðalgötu í Stykkishólmi fyrir helgi og kom þá auga á glæsilegt hús sem verið var að vinna í. Þetta fallega hús var klárað að utan nú í febrúar mánuði og standa nú framkvæmdir yfir innan dyra en vonir eru til að verkið verði klárað nú í sumar. Framkvæmdaraðilinn er ÞB Borg…Lesa meira

Síðasta fimmtudag var undirritaður samstarfssamningur milli Dalabyggðar og Skátafélagsins Stíganda. Það voru þau Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri Dalabyggðar og Katrín Lilja Ólafsdóttir f.h. Stíganda sem undirrituðu samninginn. Markmið samningsins er meðal annars að skilgreina og efla tengsl sveitarfélagsins og skátafélagsins með það að markmiði að styrkja Dalabyggð frekar sem áhugaverðan og góðan búsetukost, þar sem…Lesa meira

Í nýlegri íbúakönnun, sem Vífill Karlsson hagfræðingur SSV er að vinna, var leitað vísbendinga um væntanlega búferlaflutninga fólks vítt og breitt um landið. Í þeim tilgangi var spurt: „Finnst þér líklegt eða ólíklegt að þú eigir eftir að flytja búferlum á næstu tveimur árum?“ Niðurstaðan á Vesturlandi er áhugaverð. Á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit eru…Lesa meira