Boðið var upp á þjóðlega rétti. Ljósm. Heiðarskóli

Fjölmenningarþema í Heiðarskóla

Í síðustu viku var fjölmenningarþema í Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit þar sem unnið var með menningu níu landa sem öll tengjast nemendum skólans á einhvern hátt. Nemendur unnu part úr degi í aldursblönduðum hópum og markmið verkefnisins voru m.a. að stuðla að gagnkvæmri virðingu og skilningi, varpa ljósi á fjölbreytta menningarheima og síðast en ekki síst að læra um það hvað við mannfólkið erum öll lík þrátt fyrir ólíkan bakgrunn.

Fjölmenningarþema í Heiðarskóla - Skessuhorn