Ómar H. Matthíasson hjá ÓH verktökum. Ljósm. vaks

ÓH verktakar sjá um fiskmarkaðinn á Akranesi

Fiskmarkaður Íslands opnaði í apríl útibú sitt á ný á Akranesi sem staðsett er á Faxabraut 5. Að sögn Ragnars Smára Guðmundssonar, framkvæmdastjóra hjá Fiskmarkaði Íslands, var gengið í það að fá öll þau leyfi sem þurfti til að geta starfrækt fiskmarkað í húsnæðinu. „Það er von okkar hjá Fiskmarkaði Íslands að geta haldið úti útibúi á Akranesi næstu árin. Það hafa verið þó nokkur umsvif síðustu daga og þann 2. maí byrjar strandveiðin af fullum krafti.“

ÓH verktakar sjá um fiskmarkaðinn á Akranesi - Skessuhorn