
Lionsmenn að mála Tind. Ljósmyndir: AF
Tindur í Ólafsvík rifinn
Í gær var hafist handa við að rífa bátinn Tind SH sem hefur staðið við Hrafnabjarg í Ólafsvík sem eins konar kennileiti fyrir bæinn á afar fallegum stað. Mikill sjónarsviptir er því af brotthvarfi bátsins. Tindur SH hefur staðið á þessum stað í rétt 30 ár og hefur Lionsklúbbur Ólafsvíkur séð um umhirðu á bátnum allar götur frá 1994. Báturinn var orðinn fúinn af langri landlegu eins og gerist jafnan þegar trébátar enda uppi á landi. Skemmst er að minnast ástands kútters Sigurfara á Akranesi.