Fréttir

true

Línur teknar að skýrast í baráttunni um Bessastaði

Fjórir af væntanlegum forsetaframbjóðendum mælast með áberandi mest fylgi í nýrri skoðanakönnun Prósents sem gerð var fyrir Morgunblaðið og birt í morgun. Könnunin var gerð dagana 16.-21. apríl. Frestur til að skila inn framboðum rennur út næstkomandi föstudag en átta höfðu skilað inn framboði með tilskyldum fjölda meðmælenda fyrir síðustu helgi. Í kjölfar frestsins, sem…Lesa meira

true

Fimm kóra mót var haldið á Akranesi

Síðastliðinn laugardag var mikið sungið á Akranesi. Þá fékk Hljómur, kór félags eldri borgara á Akranesi, fjóra gestakóra í heimsókn og blásið var til árlegra söngtónleika í sal Fjölbrautaskóla Vesturlands. Gestakórarnir voru: Eldey á Suðurnesjum, Hörpukórinn í Árborg, Gaflarakórinn í Hafnarfirði og Vorboðar í Mosfellsbæ, alls 150 manns. „Þarna sýndu og sönnuðu þátttakendur að aldur…Lesa meira

true

Borgfirðingar tóku á móti Rangæingum í Brún

Síðastliðinn laugardag var spilað bridds í félagheimilinu Brún í Bæjarsveit. Gestgjafarnir voru Bridgefélag Borgarfjarðar en gestir komu frá Bridgefélagi Rangæinga. Fjórar sveitir voru frá hvoru félagi. Spilamennskan hófst eftir hádegi og spilað var fram á kvöld. Þetta er fyrsti hittingur þessara félaga en ákveðið að gera hana að árlegum viðburði eftir þetta, enda tókst vel…Lesa meira

true

Skeifudagur, afmæli Grana og útskrift úr Reiðmanninum framundan

Grani, hestamannafélag nemenda LbhÍ, býður til uppskeruhátíðar á Mið-Fossum á sumardaginn fyrsta og hefst dagskráin kl. 13. Keppt verður m.a. um Morgunblaðsskeifuna og Gunnarsbikarinn eins og undanfarin ár. Nemendur sýna afrakstur vetrarins en þeir temja trippi ásamt því að þjálfa tamið hross. Grani heldur einnig upp á afmæli sitt í ár en 70 ár eru…Lesa meira

true

Sundgarpar í Borgarnesi

Á síðasta ári hófst formlegt starf Sunddeildar Skallagríms að nýju eftir stutt hlé. Áhugi almennings á sundnámskeiðum kom fljótt í ljós og hófust byrjendanámskeið, skriðsundsnámskeið og reglulegar garpaæfingar. Arnheiður Hjörleifsdóttir er þjálfari Sunddeildar Skallagríms og fékk blaðamaður leyfi til að koma við á sundlaugarbakkanum á björtum en köldum apríldegi og spjallaði við Arnheiði um starfið.…Lesa meira

true

Gyða Björk kosin formaður ÍA á áttugasta ársþingi félagsins

Síðastliðinn fimmtudag var áttugasta ársþing Íþróttabandalags Akraness haldið á Garðavöllum. Seturétt á þinginu áttu 70 fulltrúar en 42 þeirra mættu. Fulltrúar voru engu að síður frá nánast öllum aðildarfélögum því einungis vantaði fulltrúa frá einu þeirra. Á þinginu ávarpaði Hrönn Ríkharðsdóttir, fráfarandi formaður, þingið og setti það. Þingforseti var kjörinn Pétur Ottesen og stýrði hann…Lesa meira

true

Bæjarstjórn kynnir hugmyndir að nýju ráðhúsi við Mánabraut

Á vef Akraneskaupstaðar er nú að finna ítarlega kynningu bæjarstjórnar á hugmyndum um nýtt ráðhús/stjórnsýsluhús við Mánabraut, þar sem skrifstofuhús fyrrum Sementsverksmiðju stendur nú. Samkvæmt hugmyndum bæjarstjórnar verður það hús rifið og annað hús byggt á lóðinni. Auk starfsemi Ráðhúss er kynntur möguleika á leigu fyrir fleiri aðila, t.d. ríkisstofnanir og er þar einkum horft…Lesa meira

true

Askja hefur opnað bílaumboð sitt á Vesturlandi

Það var létt yfir mannskapnum í gær þegar bílaumboðið Askja opnaði sölu- og þjónustuumboð við Innnesveg 1 á Akranesi. Haraldur Benediktsson bæjarstjóri færði forsvarsmönnum umboðsins blóm og bauð starfsemina velkomna í bæinn. Boðið var upp á veitingar og sýndir nýir bílar frá Mercedes-Benz, Smart, Kia og Honda en einnig er gott úrval notaðra bíla á…Lesa meira

true

Forysta Framsóknar endurnýjaði umboð sitt

Sigurður Ingi Jóhannsson var á 37. flokksþingi Framsóknar, sem fram fór um helgina, endurkjörinn formaður flokksins með rúmlega 96% greiddra atkvæða. Sigurður Ingi hefur verið formaður frá árinu 2016. Lilja Dögg Alfreðsdóttir var endurkjörin varaformaður með tæplega 90% greiddra atkvæða en hún hefur verið varaformaður frá árinu 2016. Þá var Ásmundur Einar Daðason endurkjörinn ritari…Lesa meira

true

Fór í Stýrimannaskólann og varð faðir sautján ára gamall

Viðtal úr Sjómannadagsblaði Skessuhorns 2018 við Björn Erling Jónasson í Ólafsvík „Við byrjuðum tveir jafnaldrar á síldarnót hjá pabba upp á 70% hlut, fimmtán ára gamlir,“ segir Björn Erlingur Jónasson, útgerðarmaður og fyrrum skipstjóri í Ólafsvík, um upphaf sjómennsku sinnar. Hann er nú kominn í land og Magnús bróðir hans tekinn við skipstjórn á Ólafi…Lesa meira