Þannig líta tillögur bæjarstjórnar út um nýtt skipulag við höfnina. Þess ber að geta að starfsleyfi fyrir sementssíló og færibandahús er til 2028. Teikning: Akraneskaupstaður.

Bæjarstjórn kynnir hugmyndir að nýju ráðhúsi við Mánabraut

Á vef Akraneskaupstaðar er nú að finna ítarlega kynningu bæjarstjórnar á hugmyndum um nýtt ráðhús/stjórnsýsluhús við Mánabraut, þar sem skrifstofuhús fyrrum Sementsverksmiðju stendur nú. Samkvæmt hugmyndum bæjarstjórnar verður það hús rifið og annað hús byggt á lóðinni. Auk starfsemi Ráðhúss er kynntur möguleika á leigu fyrir fleiri aðila, t.d. ríkisstofnanir og er þar einkum horft til starfsemi nýrrar heilsugæslustöðvar HVE. Því hefur bæjarstjórn unnið að því undanfarið að ná samtali við a.m.k. þrjá ráðherra í ríkisstjórn Íslands til að kynna verkefnið og fá ríkið til liðs við verkefnið.

Bæjarstjórn kynnir hugmyndir að nýju ráðhúsi við Mánabraut - Skessuhorn