
Gyða Björk Bergþórsdóttir er nýr formaður Íþróttabandalags Akraness. Ljósm. ÍA
Gyða Björk kosin formaður ÍA á áttugasta ársþingi félagsins
Síðastliðinn fimmtudag var áttugasta ársþing Íþróttabandalags Akraness haldið á Garðavöllum. Seturétt á þinginu áttu 70 fulltrúar en 42 þeirra mættu. Fulltrúar voru engu að síður frá nánast öllum aðildarfélögum því einungis vantaði fulltrúa frá einu þeirra. Á þinginu ávarpaði Hrönn Ríkharðsdóttir, fráfarandi formaður, þingið og setti það. Þingforseti var kjörinn Pétur Ottesen og stýrði hann fundi með sóma. Þinghaldið sjálft tók einungis hundrað mínútur þó svo að lagabreytingar væru kynntar og samþykktar og nokkrar reglugerðir samþykktar að auki. Meðal annars var í fyrsta skipti í sögu ÍA sem reglur um úthlutun á lottófjármunum voru samþykktar.