Fréttir

true

Píludeild Skallagríms stofnuð

Í gær fór stofnfundur Píludeildar Skallagríms fram í Grillhúsinu í Borgarnesi og er aðstöðu deildarinnar þar að finna. Fjörutíu manns sóttu fundinn og kosið var í stjórn. Formaður er Gunnar Bragi Jónasson, gjaldkeri er Bjarni Tryggvason, Orri Sveinn Jónsson er meðstjórnandi ásamt Þóri Indriðasyni en Þorvaldur Ásberg Kristbergsson er ritari stjórnar. Samkvæmt Þorvaldi Ásberg er…Lesa meira

true

Dalabyggð bregst við vegna breytinga á póstafgreiðslu

Dalabyggð barst á dögunum bréf frá Byggðastofnun þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna fyrirhugaðra breytinga á póstþjónustu í Búðardal en samkvæmt erindi Íslandspósts sem fylgdi bréfinu mun pósthúsinu í Búðardal verða lokað frá og með 1. júní nk. Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri Dalabyggðar skrifar pistil á vef Dalabyggðar og þar kemur fram að…Lesa meira

true

Bátafélagið Ægir sendir frá sér áskoranir

Framtíð Breiðafjarðar, grásleppa og strandveiðar meðal ályktana Bátafélagið Ægir í Stykkishólmi hélt aðalfund sinn á miðvikudaginn í dymbilvikunni. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að þetta sé eitt elsta smábátafélag landsins og hafi frá upphafi haft hagsmuni smábátaeiganda að leiðarljósi og barist fyrir þeim. Þau baráttumál hafa í gegnum tíðina verið mörg og æði misjöfn.…Lesa meira

true

Leita að 15-18 ára sæskrímslum

Sirkushópurinn Hringleikur frá Reykjavík leitar að ungmennum 15-18 ára til að taka þátt í götuleikhússýningunni Sæskrímslin þegar verkið verður flutt á Akranesi þriðjudaginn 4. júní klukkan 17:15. Þetta kemur fram á vef Akraneskaupstaðar og þar segir: „Ert þú 15-18 ára og hefur áhuga á götuleikhúsi, sirkus og framkomu? Viltu taka þátt í stærsta götuleikhúsviðburði landsins?“…Lesa meira

true

Umferðin í landshlutanum gekk vel yfir páskana

Í liðinni viku voru höfð afskipti af 44 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Jafnframt voru brot níu ökumanna mynduð með færanlegri hraðamyndavél. Einn ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Fram kemur í dagbók lögreglu að mikil umferð hafi verið í páskavikunni en heilt yfir gekk hún vel. Ökumaður…Lesa meira

true

Guðrún Karítas bætti Íslandsmetið í sleggjukasti í smá stund

Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir frá Vatnshömrum í Borgarfirði keppti í sleggjukasti á Bobcat Invitational í Texas, bandarísku háskólamóti, á laugardaginn síðasta. Guðrún kastaði sleggjunni lengst 69,76 metra og sló þá Íslandsmet Elísabetar Rutar Rúnarsdóttur en fyrra metið var 69,11 metrar. Íslandsmetið stóð þó ekki lengi því Elísabet Rut svaraði með kasti upp á 70,33 metra og…Lesa meira

true

Luku páskamótinu í gær

Á öðrum degi páska lauk þriggja kvölda páskamóti hjá Bridgefélagi Borgarfjarðar í Logalandi. Það fyrirkomulag var viðhaft að besti árangur tveggja kvölda gilti til úrslita. Það hefur þann ótvíræða kost að menn geta eygt verðlaunasæti þrátt fyrir eitt slakt kvöld. Röð efstu para skýrðist ekki fyrr en undir blálokin. Þeir Guðmundur Ólafsson og Sveinbjörn Eyjólfsson…Lesa meira

true

Skagamenn fengu silfrið í Lengjubikarnum

Breiðablik og ÍA áttust við í úrslitum Lengjubikars karla í knattspyrnu á miðvikudag fyrir páska og var leikurinn á Kópavogsvelli. Kristófer Ingi Kristinsson kom Blikum yfir á 23. mínútu með skallamarki en Marko Vardic jafnaði metin fyrir ÍA með þrumuskoti fyrir utan teig sex mínútum fyrir hálfleik. Fyrirliðinn Höskuldur Gunnlaugsson skoraði síðan snyrtilegt mark fyrir…Lesa meira

true

Tekist á fyrir dómi um land og aðgang að því

Í héraðsdómi Vesturlands var 22. mars síðastliðinn kveðinn upp dómur í landamerkjadeilu eigenda tveggja jarða í Stafholtstungum í Borgarfirði en jarðirnar liggja sitthvorum megin við Norðurá. Stefnendur í málinu eru núverandi eigendur jarðarinnar Svarfhóls, þau Arnaldur Jón Gunnarsson og Unnur Karlsdóttir sem keyptu jörðina árið 2021. Stefndu þau H.J. Sveinssyni ehf., þinglýstum eiganda jarðarinnar Sólheimatungu.…Lesa meira