Fréttir

true

Unir dómi um alvarlegt brot á dýravelferð

Í desember 2022 kærði Matvælastofnun bónda á Austurlandi til lögreglu fyrir að hafa vanrækt að fóðra nautgripi sína þannig að sjö þeirra drápust og lágu dauðir og afskiptalausir í útihúsum í nokkurn tíma. Var bóndinn ákærður í framhaldi af kærunni. Í nýlegum dómi héraðsdóms Austurlands kemur fram að brot bóndans teldist stórfellt og þótti refsing…Lesa meira

true

Frábær þátttaka í Janus 60 plús í Borgarbyggð

Í október á síðasta ári var undirritaður samstarfssamningur á milli Borgarbyggðar og Janusar heilsueflingar. Verkefnið var síðan kynnt í nóvember og nú í byrjun árs fór verkefnið af stað. Markmið Janusar heilsueflingar er að bæta heilsutengdar forvarnir, efla hreyfifærni, bæta styrk og þol, auka líkamlega afkastagetu og bæta heilsu og lífsgæði. Kristrún Kúld Heimisdóttir stýrir…Lesa meira

true

Neyðarástand þegar lífæðin hrynur

“Þið eigið leik ágætu alþingismenn!” Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti samhljóða á fundi sínum á þriðjudaginn ályktun um vegamál. Vísar sveitarstjórn til fréttar á vef Vegagerðarinnar 9. mars sl. þar sem tilkynnt var um varasamt ástand vega í Reykhólasveit og Dölum og að vegna þess hafi þurft að breyta nokkrum köflum í malarvegi fram á sumar. Ástæðan…Lesa meira

true

Bilun í kælikerfi og Kjörbúðin gaf því mat

Bilun kom upp í nokkrum kælum Kjörbúðarinnar í Grundarfirði síðustu nótt. Töluvert magn af matvælum lá því undir skemmdum í morgun og var brugðið á það ráð að auglýsa kælivörur gefins. Sett var tilkynning á samfélagsmiðla Grundarfjarðarbæjar og Snæfellsbæjar og brugðust íbúar vel við því. Hvert bílastæði var upptekið við Kjörbúðina þegar mest gekk á.…Lesa meira

true

Askja opnar brátt sölu- og þjónustuumboð á Akranesi

Bílaumboðið Askja mun í byrjun apríl opna sölu- og þjónustuumboð á Innnesvegi 1 á Akranesi. Viktor Elvar Viktorsson hefur verið ráðinn rekstrarstjóri Öskju á Vesturlandi. Þar verður sala nýrra og notaðra bíla ásamt einfaldri verkstæðis- og hjólbarðaþjónustu. Húsið er vel þekkt þar sem Bílver rak þar sölu- og þjónustuumboð fyrir Honda um árabil og bifreiðaverkstæði.…Lesa meira

true

Lionsklúbburinn Agla færir Menntaskóla Borgarfjarðar veglega gjöf

Menntaskóli Borgarfjarðar fékk frábæra heimsókn nú í vikunni þegar ellefu eldhressar konur úr Lionsklúbbnum Öglu í Borgarnesi komu í heimsókn. Þær komu einnig færandi hendi og afhentu MB veglegan styrk til tækjakaupa. Gjöfin verður nýtt til kaupa á fullkomnum prentara sem verður staðsettur í Kviku – skapandi rými. Konurnar nefndu að Lionsklúbburinn reynir að láta…Lesa meira

true

Fyrsta skemmtiferðaskip ársins komið til landsins

Á þessu ári eru áætlaðar 258 skipakomur skemmtiferðaskipa til Faxaflóahafna samanborið við 262 á síðasta ári. Þá eru áætlaðir að skiptifarþegar verði ríflega 161 þúsund, af um 308 þúsund í heildar farþegatölu, en það gerir um 52% hlutfall skiptifarþega. „Það eru gleðileg tíðindi að tekist hefur að auka hlutdeild skiptifarþega þar sem tekjur af skiptifarþegum…Lesa meira

true

Ungliðar björgunarsveita á æfingu

Það var margt um manninn í Heiðmörk síðastliðinn laugardag þegar rúmlega 70 unglingar frá unglingadeildum Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi tóku þátt í leitaræfingu sem umsjónarmenn unglinganna höfðu skipulagt. Leitaræfingin snérist fyrst og fremst um að sýna unglingunum hvernig leitarhópar frá mismunandi svæðum og einingum vinna saman, hvernig allir tilheyra sömu heildinni þrátt fyrir mismunandi…Lesa meira

true

Afleit veðurspá fyrir norðvestur hluta landsins

Gul viðvörun er nú í gildi fyrir Breiðafjörð allt til hádegis á morgun, föstudag, en þar verður norðaustan 15-23 m/s og snjókoma eða slydda. Búast má við slæmu skyggi og versnandi færð. Appelsínugul viðvörun er fyrir Vestfirði þar sem spáð er stórhríð og samhliða snjóflóðahættu. Vegagerðin bendir á að vegna veðurs verður veginum yfir Holtavörðuheiði…Lesa meira

true

Fór ekki eftir fyrirmælum lögreglu

Afskipti voru höfð af 33 ökumönnum í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi vegna of hraðs aksturs í liðinni viku. Þar af mældist einn innanbæjar í Borgarnesi á nærri tvöföldum hámarkshraða þar sem hámarkshraði er 30 km/klst. Meint hraðabrot 49 ökumanna voru mynduð með færanlegri hraðamyndavél embættisins. Tveir ökumenn eru grunaðir um ölvun við akstur síðastliðna viku.…Lesa meira