
Lionskonur við nýja prentarann. Ljósm: Menntaskóli Borgarfjarðar
Lionsklúbburinn Agla færir Menntaskóla Borgarfjarðar veglega gjöf
Menntaskóli Borgarfjarðar fékk frábæra heimsókn nú í vikunni þegar ellefu eldhressar konur úr Lionsklúbbnum Öglu í Borgarnesi komu í heimsókn. Þær komu einnig færandi hendi og afhentu MB veglegan styrk til tækjakaupa. Gjöfin verður nýtt til kaupa á fullkomnum prentara sem verður staðsettur í Kviku – skapandi rými.