
Vetur í Stykkishólmi. Ljósm. úr safni
Afleit veðurspá fyrir norðvestur hluta landsins
Gul viðvörun er nú í gildi fyrir Breiðafjörð allt til hádegis á morgun, föstudag, en þar verður norðaustan 15-23 m/s og snjókoma eða slydda. Búast má við slæmu skyggi og versnandi færð. Appelsínugul viðvörun er fyrir Vestfirði þar sem spáð er stórhríð og samhliða snjóflóðahættu.
Vegagerðin bendir á að vegna veðurs verður veginum yfir Holtavörðuheiði lokað kl. 21:30 í kvöld, en er samt sem áður á óvissustigi og gæti lokað með stuttum fyrirvara í dag.