Færri skipakomur verða í ár en hlutfall skiptifarþega hækkar. Fyrsta skipið í ár var Ambition.

Fyrsta skemmtiferðaskip ársins komið til landsins

Á þessu ári eru áætlaðar 258 skipakomur skemmtiferðaskipa til Faxaflóahafna samanborið við 262 á síðasta ári. Þá eru áætlaðir að skiptifarþegar verði ríflega 161 þúsund, af um 308 þúsund í heildar farþegatölu, en það gerir um 52% hlutfall skiptifarþega. „Það eru gleðileg tíðindi að tekist hefur að auka hlutdeild skiptifarþega þar sem tekjur af skiptifarþegum eru ríflega þrisvar sinnum hærri heldur en af almennum skipafarþegum,“ segir Sigurður Jökull Ólafsson markaðsstjóri Faxaflóahafna. „Það er ánægjulegt að sjá að áætlun okkar um að auka hlutdeild farþegaskipta og þar með framlegð fyrir höfnina og ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu er að raungerast á þessu ári. Við náðum ákveðnum toppi á seinasta ári og nú horfum við til þess hvernig við getum aukið tekjur per ferðamann frekar en vöxt í magni,“ segir Sigurður Jökull. Aðspurður segir Sigurður að ekki sé von á skemmtiferðaskipi til Akraness á þessu ári.

Fyrsta skemmtiferðaskip ársins komið til landsins - Skessuhorn