Fréttir

true

Fermingarfræðslunni að ljúka og styttist í fermingar í Borgarnesi

Nú er undirbúningur í fullum gangi hjá fermingarbörnum í Borgarnesi og styttist í stóra daginn – sjálfan fermingardaginn. Blaðamaður leit við í fermingarfræðslu í Borgarneskirkju, þar sem séra Heiðrún Helga Bjarnadóttir var með fermingarbörnin í fræðslu- og spjallstund. „Ég hitti krakkana einu sinni í viku frá hausti og fram á vor. Mér finnst mikilvægt að…Lesa meira

true

Spáð er erfiðri færð á fjallvegum víða um land

Vegagerðin bendir á að spáð er norðaustan stormi og erfiðum skilyrðum til aksturs í snjókomu og skafrenningi á fjallvegum á Vestfjörðum í kvöld. Víða verður blint og erfið akstursskilyrði á fjallvegum um norðvestanvert landið á morgun en útlit er fyrir að það hvessi ekki á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku fyrr en annað kvöld. Hvasst og hviður…Lesa meira

true

Nokkur umferðaróhöpp vegna hálku

Í liðinni viku voru höfð afskipti af allnokkrum ökumönnum vegna notkunar farsíma við aksturinn eða vegna skorts á notkun bílbelta. Einnig kemur fram í dagbók Lögreglunnar á Vesturlandi að nokkuð var um afskipti af ökumönnum stærri bifreiða, ýmist vegna rangrar notkunar á ökurita eða farmur reyndist of þungur eða illa frágenginn. Tvö umferðaróhöpp urðu á…Lesa meira

true

Þarf sjó og fjöll til að skjóta rótum

Rætt við Hákon Ásgeirsson, þjóðgarðsvörð Snæfellsjökulsþjóðgarðs „Það sem er sérstakt við Snæfellsnesið, sérstaklega hér á Hellissandi, er þessi mikla birta. Sólin hverfur aldrei, hún sést koma upp og fara niður, og svo er orkan úr jöklinum og úr sjónum. Það er sagt að Snæfellsnes sé ein af sjö orkustöðvum jarðar og ég held að það…Lesa meira

true

Blaðið í næstu viku kemur út degi fyrr

Í næstu viku, dymbilvikunni, verður Skessuhornsblaðið gefið út degi fyrr en venjulega, þ.e. þriðjudaginn 26. mars. Það er gert til að freista þess að Íslandspóstur komi blöðunum til áskrifenda tímanlega fyrir páska. Efni til birtingar og pantanir á auglýsingum þurfa að berast í síðasta lagi næstkomandi sunnudag. Efni sendist á netfangið skessuhorn@skessuhorn.is en auglýsingar á…Lesa meira

true

Fundadagur hjá sveitarstjórnarfólki í dag

Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi fer fram á Hótel Hamri í Borgarnesi í dag, miðvikudag. Sömuleiðis verða venju samkvæmt haldnir aðalfundir Starfsendurhæfingar Vesturlands, Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands, Heilbrigðisnefndar Vesturlands og Sorpurðunar Vesturlands.Lesa meira

true

Stýrivextir óbreyttir

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands kynnti í morgun þá ákvörðun sína að halda stýrivöxtum óbreyttum, 9,25%. Þessi ákvörðun stofnunarinnar kom mörgum á óvart, en því hafði verið spáð að stofnunin myndi hefja lækkun stýrivaxta, ekki síst í ljósi nýgerðra kjarasamninga á vinnumarkaði sem beinlínis höfðu það aðalmarkmið að ná niður vöxtum og verðbólgu. Í tilkynningu Seðlabankans segir:…Lesa meira

true

„Við höfum svo fína aðstöðu til að gera svo margt og þjóna samfélaginu betur“

segir Ingibjörg Ösp Júlíusdóttir forstöðumaður Bókasafns Akraness Margt hefur breyst í starfsemi almenningsbókasafna á liðnum árum. Frá því eins og var á fyrri tímum að vera eingöngu með útlán á bókum yfir í það að verða fjölbreyttar samfélags- og menningarmiðstöðvar. Þessi þróun á sér stað út um allan heim. Fram kom í nýlegri skýrslu Norrænu…Lesa meira

true

Bæjarstjórn Akraness samþykkti stefnu í öldrunarþjónustu

Á fundi bæjarstjórnar Akraness 12. mars sl. var samþykkt stefna bæjarins í öldrunarmálum. Velferðar- og mannréttindaráði var falið að formgera tillögur um forgangsröðun verkefna sem fari svo til efnislegrar meðferðar í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar. Stefnan er svohljóðandi en hana má finna á akranes.is. Inngangur Aldurssamsetning þjóðarinnar breytist nú hratt. Eldra fólk lifir lengur en áður, og…Lesa meira